Hjúkrunarfræðingar á sjúkraþyrlum : umfjöllun um stöðu þyrlusjúkraflutninga á Íslandi, erlendis og störf flughjúkrunarfræðinga

Umfang sjúkraflutninga með þyrlum á Íslandi hefur farið stigvaxandi á síðustu árum og benda spár til áframhaldandi fjölgunar. Í dag er sjúkraflutningum sinnt með stórum björgunarþyrlum Landhelgisgæslunnar en lagt hefur verið til að hefja rekstur á sérstökum sjúkraþyrlum með sjúkraflutninga í huga. T...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Fannar Þór Benediktsson 1993-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2018
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/30898
Description
Summary:Umfang sjúkraflutninga með þyrlum á Íslandi hefur farið stigvaxandi á síðustu árum og benda spár til áframhaldandi fjölgunar. Í dag er sjúkraflutningum sinnt með stórum björgunarþyrlum Landhelgisgæslunnar en lagt hefur verið til að hefja rekstur á sérstökum sjúkraþyrlum með sjúkraflutninga í huga. Til að mæta þörfum bráðveikra og alvarlegra slasaðra sjúklinga þarf sérhæfða áhöfn heilbrigðisstarfsmanna og eru til staðar tillögur um þátttöku hjúkrunarfræðinga. Markmið þessarar heimildarsamantektar var að kanna hlutverk hjúkrunarfræðinga sem starfa á sjúkraþyrlum með áherslu á kröfur um menntun, reynslu og þjálfun þeirra. Heimildir voru fengnar úr fræðitímaritum, bókum, skýrslum og vefsíðum. Jafnframt var staða sjúkraflutninga með þyrlum á Íslandi skoðuð með hliðsjón af erlendri starfsemi, sérstaklega m.t.t. mismunandi samsetningu áhafnarmeðlima. Einnig var fjallað um almenn gildi og störf hjúkrunarfræðinga ásamt lögum og siðareglum sem ná til fagstéttarinnar. Niðurstöður sýndu að hjúkrunarfræðingar starfa á sjúkraþyrlum víða erlendis og hafi oftast reynslu af bráða-, gjörgæslu- og svæfingahjúkrun. Ekki hefur tekist að sýna fram á hagkvæmustu samsetningu áhafnarmeðlima en helstu samanburðarlönd styðjast við teymi læknis og hjúkrunarfræðings eða bráðatæknis. Starfsumhverfi flughjúkrunarfræðinga er krefjandi og eru miklar kröfur gerðar til þeirra á sviði þekkingar, færni og hæfni. Þurfa þeir almennt að ljúka ströngu aðlögunar- og þjálfunarferli. Sýnt hefur verið fram á gagnsemi hermikennslu við þjálfun. Höfundur ályktar að hjúkrunarfræðingar gætu orðið mikilvægur þáttur í starfsemi sjúkraþyrla á Íslandi. Nauðsynlegt er að skilgreina kröfur til hjúkrunarfræðinga sem veita utanspítalaþjónustu á Íslandi ásamt því að tryggja framboð viðeigandi menntunar og þjálfunar svo að fullnægja megi þeim kröfum sem lagðar yrðu fram. Lykilhugtök: Hjúkrunarfræðingar, flughjúkrun, sjúkraflutningar, sjúkraþyrla. The extent of helicopter transport for patients in Iceland has steadily risen in later years with predictions of further ...