„Þegar neyðin er stærst er hjálpin næst‟ : móttaka fjöláverkasjúklinga : rannsóknaráætlun

Verkefnið er lokað til 16.05.2040. Rannsóknaráætlun þessi er lokaverkefni til B.S. prófs í hjúkrunarfræði við Háskólann á Akureyri. Tilgangur: Tilgangur rannsóknarinnar er að bera saman verkferla flokkunar og áverkamats fjöláverkasjúklinga á bráðamóttöku Landspítalans við verkferla bráðamóttaka heil...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Anna Karen Einarsdóttir 1992-, Guðbjörn Ólsen Jónsson 1990-, Sandra Rós Helgadóttir 1990-, Tinna Sif Daníelsdóttir 1987-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2018
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/30894
Description
Summary:Verkefnið er lokað til 16.05.2040. Rannsóknaráætlun þessi er lokaverkefni til B.S. prófs í hjúkrunarfræði við Háskólann á Akureyri. Tilgangur: Tilgangur rannsóknarinnar er að bera saman verkferla flokkunar og áverkamats fjöláverkasjúklinga á bráðamóttöku Landspítalans við verkferla bráðamóttaka heilbrigðisstofnanna á landsbyggðinni. Samskonar rannsókn hefur ekki verið framkvæmd hér á landi og gæti því gefið góða mynd af móttöku fjöláverkasjúklinga hér á landi. Rannsóknaraðferð: Í fyrirhugaðri rannsókn verður notast við megindlega rannsóknaraðferð. Spurningarlistar verða sendir á helstu slysa- og bráðamóttökur hvers landshluta og hjúkrunarfræðingar og aðrir heilbrigðisstarfsmenn beðnir um að svara honum. Ályktun: Rannsakendur telja mikilvægt að allstaðar séu til verkferlar um móttöku fjöláverkasjúklinga. Við gagnasöfnun þessarar rannsóknaráætlunnar kom í ljós að mjög misjafnt er eftir landshlutum hvort verkferlar eru notaðir við móttöku fjöláverkasjúklinga og hvaða verkferlar eru notaðir. Rannsakendum finnst því mikilvægt að til séu verkferlar fyrir hverja og eina stofnun sem auðveldar starfsfólki að vita hvernig það eigi að bregðast við í móttöku á fjöláverkasjúklingum. Rannsóknarspurningar: Rannsóknarspurning fyrirhugaðrar rannsóknar er: Er munur á áverkamati og flokkun fjöláverkasjúklinga á slysa- og bráðamóttökum landsbyggðarinnar annars vegar og höfuðborgarsvæðinu hins vegar? Hver er tilgangur fyrstu og annarrar skoðunar og hvaða upplýsinga er aflað með þeim? Lykilhugtök: Áverkar, fjöláverkar, áverkateymi, gullni klukkutíminn, flokkanir, fyrsta skoðun, önnur skoðun. This research is the final thesis for a BS degree in nursing from the University of Akureyri. Objective: The objective of this research is to compare the operational procedures involving the categorizing and injury assessment of multisystem trauma patients at the Landspítali emergency room versus procedures practiced at emergency rooms in rural areas across Iceland. A similar study has not been conducted before in Iceland and could therefore ...