Hjúkrunarfræðingar í bráðaþjónustu : streita, líðan og bjargráð : rannsóknaráætlun

Þessi rannsóknaráætlun er lokaverkefni til B.S. prófs í hjúkrunarfræði við Háskólann á Akureyri. Tilgangur fyrirhugaðrar rannsóknar er að finna tengsl á milli notkunar bjargráða við álagi í starfi og upplifunar streitu hjá hjúkrunarfræðingum sem starfa á slysa- og bráðadeildum. Leitað verður svara v...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Margrét Andersdóttir 1989-, Erna Dóra Hannesdóttir 1991-, Jana Kristín Alexandersdóttir 1991-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2018
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/30893
Description
Summary:Þessi rannsóknaráætlun er lokaverkefni til B.S. prófs í hjúkrunarfræði við Háskólann á Akureyri. Tilgangur fyrirhugaðrar rannsóknar er að finna tengsl á milli notkunar bjargráða við álagi í starfi og upplifunar streitu hjá hjúkrunarfræðingum sem starfa á slysa- og bráðadeildum. Leitað verður svara við eftirfarandi spurningum: Hverjir eru helstu þættir sem valda hjúkrunarfræðingum sem starfa í slysa- og bráðaþjónustu hérlendis streitu í starfi? Hvaða bjargráð nýtast þessum hjúkrunarfræðingum best við álagi og streitu í starfi? Rannsóknin verður megindleg þversniðsrannsókn og stuðst verður við spurningalistana Expanded Nursing Stress Scale (ENSS) og Ways of Coping (WOC) við gagnaöflun. Spurningalistarnir verða lagðir fyrir hjúkrunarfræðinga sem starfa á slysa- og bráðadeildum hérlendis og munu þátttakendur fá spurningalistana senda rafrænt í tölvupósti. Hjúkrunarfræðingar sem starfa á slysa- og bráðadeildum eru í mikilli áhættu fyrir streitu og kulnun í starfi vegna álags og áreitis í starfsumhverfi þessara deilda. Erlendar rannsóknir sýna að notkun jákvæðra bjargráða hjálpar hjúkrunarfræðingum að takast á við álag í starfi, minnkar streitu, eykur starfsánægju, auðveldar samskipti og dregur úr kulnun. Höfundar álykta að notkun jákvæðra bjargráða hjálpi hjúkrunarfræðingum sem starfa á slysa- og bráðadeildum að takast á við álag og streitu sem fylgir starfinu. Lykilhugtök: Streita, bjargráð, þrautseigja, streituvaldar, kulnun. This research proposal is a thesis for B.S. degree in nursing at the University of Akureyri. The proposed study will examine the relationship between coping strategies and stress experiences amongst nurses working in accident and emergency departments. The purpose of this proposed study is to find answers to the following questions: What are the main factors contributing to stress for nurses in emergency departments? Which are the most helpful coping strategies for nurses when dealing with stress and managing workload? This research will be a qualitative cross-sectional study. Participants ...