„Þann er gott að fræða, sem sjálfur vill læra“ : hermikennsla sem kennsluaðferð í hjúkrunarfræðinámi

Rannsóknaráætlun þessi er lokaverkefni til B.S. gráðu í hjúkrunarfræði við Háskólann á Akureyri. Markmið rannsóknarinnar er að kanna hvert álit nemenda er á innleiðingu hermikennslu í stað hluta verknáms í hjúkrunarfræðinámi. Í þeim tilgangi að skoða hvort aukning á hermikennslu í...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Halldóra Margrét Bjarnadóttir 1993-, Harpa Kristín Sæmundsdóttir 1981-, Guðný Lilja Jóhannsdóttir 1991-, Sigurlína Guðný Jónsdóttir 1991-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2018
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/30888
Description
Summary:Rannsóknaráætlun þessi er lokaverkefni til B.S. gráðu í hjúkrunarfræði við Háskólann á Akureyri. Markmið rannsóknarinnar er að kanna hvert álit nemenda er á innleiðingu hermikennslu í stað hluta verknáms í hjúkrunarfræðinámi. Í þeim tilgangi að skoða hvort aukning á hermikennslu í hjúkrunarfræðinámi sé raunhæfur kostur til styttingar verknáms. Fjöldatakmörkunum er beitt í hjúkrunarfræðinám ár hvert m.a. vegna skorts á verknámsplássum, þrátt fyrir skort á hjúkrunarfræðingum sem mun einungis aukast næstu ár. Með aukinni notkun hermikennslu í hjúkrunarfræðinámi mætti fjölga nemendum í náminu og þar með auka fjölda útskrifaðra hjúkrunarfræðinga. Víða erlendis má finna fyrirmyndir fyrir því að nota að einhverjum hluta hermikennslu í stað verknáms og hefur verið almenn ánægja með slíkt fyrirkomulag meðal hjúkrunarfræðinema. Rannsóknarspurning fyrirhugaðrar rannsóknar er: Hvert er viðhorf hjúkrunarfræðinema á fjórða ári til aukinnar hermikennslu í hjúkrunarfræðinámi? Notast verður við eigindlega rannsóknaraðferð við að reyna að svara rannsóknarspurningunni og leggja höfundar til að hugmyndafræði Vancouver-skólans í fyrirbærafræði verði höfð að leiðarljósi. Eigindleg rannsóknaraðferð er talin henta vel þar sem opnar spurningar og viðtöl eru talin gefa betri sýn á efnið en spurningalistar og tölfræðilegar rannsóknir. Leitað verður álitis fjórða árs hjúkrunarfræðinema á frekari innleiðingu hermikennslu í hjúkrunarfræðinámi. Það er von höfunda að notkun hermikennslu að hluta til á móti verknámi falli vel að væntingum nemenda hérlendis til verknáms og geti gert verknámstíma markvissari. Enn fremur vekur aukin notkun hermikennslu vonir höfunda um að hjúkrunarfræðinemar ljúki verknámi með auknu öryggi, minni streitu og verði betur í stakk búnir til að takast á við komandi tíð. Lykilhugtök: hermikennsla, hjúkrunarfræðinemi, sýndarsjúklingur, verknám, viðrun. This research proposal is a thesis submitted towards a B.S. ...