Flóttafólk í fyrirheitna landinu : áskoranir í starfi hjúkrunarfræðinga við umönnun flóttafólks

Rannsóknaráætlun þessi er lokaverkefni til B.S prófs í hjúkrunarfræði við Háskólann á Akureyri. Fjöldi flóttafólks sem flutt hefur til Íslands hefur aukist töluvert undanfarin ár. Samhliða því hefur einstaklingum af ólíku þjóðerni sem nýta sér heilbrigðisþjónustuna fjölgað hér...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Eva Björk Gunnarsdóttir 1993-, Fanney S. Friðfinnsdóttir 1976-, Gunnhildur Rán Hjaltadóttir 1986-, Thelma Rún Ásgeirsdóttir 1984-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2018
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/30887
Description
Summary:Rannsóknaráætlun þessi er lokaverkefni til B.S prófs í hjúkrunarfræði við Háskólann á Akureyri. Fjöldi flóttafólks sem flutt hefur til Íslands hefur aukist töluvert undanfarin ár. Samhliða því hefur einstaklingum af ólíku þjóðerni sem nýta sér heilbrigðisþjónustuna fjölgað hér á landi. Menning þessara skjólstæðinga heilbrigðiskerfisins er mismunandi og hefur það aukið fjölbreytileika notenda þess. Fjölbreytileikinn getur valdið flóknum aðstæðum, þar sem venjur, siðir, gildi og menning þessara einstaklinga eru oft ólík ríkjandi menningu hér á landi. Tilgangur fyrirhugaðrar rannsóknar er að kanna aðkomu og reynslu hjúkrunarfræðinga þegar þeir hjúkra flóttafólki á Íslandi. Áskoranir og hindranir sem hjúkrunarfræðingar standa iðulega frammi fyrir verða kannaðar, þar sem þær geta haft áhrif á störf þeirra við umönnun skjólstæðinga. Hefðir, skoðanir, trúarbrögð, menning, tungumálaörðugleikar og andleg vandamál flóttamanna geta til að mynda haft afgerandi áhrif á hjúkrunina sem er veitt. Með notkun eigindlegrar rannsóknaraðferðar verður gagna aflað með hálf stöðluðum viðtölum við 15 hjúkrunarfræðinga sem starfa við hjúkrun flóttamanna á Íslandi. Hjúkrunarfræðingar þurfa að upplifa erfiðar og myndrænar áfallalýsingar vegna atburða sem flóttafólk hefur oft þurft að þola. Þessi reynsla hjúkrunarfræðinga hefur valdið því að þeir eru í aukinni áhættu að þjást t.d. af streitu, áfallastreituröskun, alvarlegu þunglyndi og kulnun í starfi. Það er því mikilvægt að hjúkrunarfræðingar sem sinna flóttafólki nýti sér streituminnkandi úrræði til að draga úr neikvæðum afleiðingum hjúkrunar flóttafólks, þar sem of mikil streita getur haft alvarlegar afleiðingar í för með sér. Lykilhugtök: Flóttafólk, hælisleitendur, kvótaflóttafólk, menning, trúarbrögð. This research proposal is a dissertation for a B. S. degree in nursing at the University of Akureyri. Over the past years, the number of refugees has greatly increased in Iceland. ...