Áhrif samfélagsmiðla á svefn unglinga : kerfisbundin heimildasamantekt

Rannsóknin er lokaverkefni til B.S. gráðu í hjúkrunarfræði við Heilbrigðisvísindasvið Háskólans á Akureyri. Samfélagsmiðlanotkun hefur aukist mikið síðastliðin ár og eru unglingar stærsti notendahópurinn. Undanfarin ár hefur einnig svefnlyfjanotkun meðal barna og unglinga aukist. Áhrif svefnleysis e...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Anna Lilja Sigurðardóttir 1989-, Sunna Líf Guðmundsdóttir 1989-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2018
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/30885
Description
Summary:Rannsóknin er lokaverkefni til B.S. gráðu í hjúkrunarfræði við Heilbrigðisvísindasvið Háskólans á Akureyri. Samfélagsmiðlanotkun hefur aukist mikið síðastliðin ár og eru unglingar stærsti notendahópurinn. Undanfarin ár hefur einnig svefnlyfjanotkun meðal barna og unglinga aukist. Áhrif svefnleysis eru margþætt og geta haft alvarlegar afleiðingar á þroska unglinga, líkamlega og andlega heilsu og námsárangur þeirra. Það er því vert að skoða hvort samfélagsmiðlanotkun hafi áhrif á svefn unglinga og hver slík áhrif geta verið. Það er mikilvægt að hjúkrunarfræðingar sem starfa með unglingum séu meðvitaðir um afþreyingarefni þeirra og áhrif þess á heilsu. Hjúkrunarfræðingar sinna fræðslu og forvörnum víðs vegar í heilbrigðiskerfinu auk þess sem þeir sinna inngripum og eftirfylgni ef upp kemur heilsubrestur hjá skjólstæðingum. Tilgangur þessarar rannsóknar var að skoða nýjustu rannsóknagreinar um áhrif samfélagsmiðla á svefn unglinga. Gerð var kerfisbundin heimildasamantekt (e. systematic review) þar sem rannsókna var aflað frá tímabilinu 2010-2018 í gagnasöfnunum PubMed, Ebscohost og Web of Science. Við leitina fengust átta rannsóknagreinar sem uppfylltu fyrirfram sett inntökuskilyrði. Rannsóknirnar átta gáfu vísbendingu um að samfélagsmiðlar gætu haft áhrif á svefn unglinga og afleiðingar gætu verið margvíslegar. Höfundar þessarar rannsóknar telja að niðurstöður muni auka þekkingu lesenda um áhrif samfélagsmiðla á svefn og vonast til að hjúkrunarfræðingar nýti sér niðurstöðurnar til að bæta og efla forvarnarstarf til unglinga. Lykilhugtök: Samfélagsmiðlar, unglingar, svefn, hjúkrunarfræði. This research is a B.Sc. thesis in Nursing at the University of Akureyri. Social media presence has been steadily increasing over the last few years and the largest group of social media users are teenagers. At the same time, the use of hypnotics for children and teenagers has been increasing. Side effects of sleep deprivation are complex and can have serious effects on teenagers’ physical and mental development, health and ...