Kennitöluflakk : í ljósi siðferðis og ábyrgðar atvinnulífs

Markmið þessarar rannsóknar var tvíþætt. Fyrst var að skoða fyrirbærið kennitöluflakk í ljósi siðfræðikenninga. Kennitöluflakk er misnotkun á reglu um takmarkaða ábyrgð í hlutafélögum og felur yfirleitt í sér að eignum er komið undan í nýtt félag áður en það gamla fer í gjaldþrot. Siðfræðileg greini...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Elín Dögg Gunnarsdóttir 1974-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2018
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/30884
Description
Summary:Markmið þessarar rannsóknar var tvíþætt. Fyrst var að skoða fyrirbærið kennitöluflakk í ljósi siðfræðikenninga. Kennitöluflakk er misnotkun á reglu um takmarkaða ábyrgð í hlutafélögum og felur yfirleitt í sér að eignum er komið undan í nýtt félag áður en það gamla fer í gjaldþrot. Siðfræðileg greining staðfesti með óyggjandi hætti að kennitöluflakk er siðlaust. Frekari greining leiddi einnig í ljós að hagsmunaaðilar, þar á meðal aðilar atvinnulífsins, bera óbeina siðferðilega ábyrg og ættu að leggja áherslu á að stoppa athæfið. Seinna markmiðið var að kanna viðhorf og reynslu stjórnenda leiðandi fyrirtækja í atvinnulífi á Íslandi, til að skoða hvort þeir væru of umburðarlyndir gagnvart kennitöluflakki. Spurningalisti var sendur til stjórnenda þeirra fyrirtækja sem tilheyrðu hvort tveggja; lista Creditinfo yfir framúrskarandi fyrirtæki og lista 300 stærstu fyrirtækja. Meginniðurstöður voru þær að stjórnendur hafa mjög neikvæð viðhorf til kennitöluflakks, um þriðjungur þeirra taldi fyrirtækin hafa borið skaða vegna samkeppni við fyrirtæki í kennitöluflakki og yfir 70% sögðu fyrirtækin hafa tapað viðskiptakröfum vegna þess. Yfir helmingur fyrirtækjanna höfðu neitað viðskiptasambandi vegna gruns um kennitöluflakk, oftast vegna fyrri reynslu af sama aðila. Samkvæmt gögnum hafa ýmsir hagsmunaaðilar mótmælt opinberlega og þannig reynt að þrýsta á yfirvöld að gera viðeigandi lagabreytingar til að stemma stigum við kennitöluflakki. Meðal þeirra eru Samtök atvinnulífsins og Samtök iðnaðarins. Því væri ósanngjarnt að álykta að fyrirtæki hafi átt að gera meira til að hindra kennitöluflakk með opinberum mótmælum. Aftur á móti, þá mætti skoða leiðir til að sniðganga almennt fyrirtæki og stjórnendur sem tengjast kennitöluflakki, þá yrði það ef til vill minna eftirsóknarvert. The purpose of this study was twofold. The first was to make a theoretical link between ethical theories and illegal phoenix activity, a common phenomenon in Iceland. Phoenix activity is a misuse of the rule of limited liability and happens typically ...