Hver er munurinn á aðgengi inn á húsnæðismarkað og lánakjörum á Íslandi og í Noregi?

Í skýrslu þessari er verið að leytast eftir svari við rannsóknarspurningunni „Hver er munurinn á aðgengi inn á húsnæðismarkað og lánakjörum á húsnæðislánum á Íslandi og í Noregi?“ Við vinnslu skýrslunar voru lánamarkaðir á Íslandi og í Noregi skoðaðir ásamt því að nota megindlega aðferðafræði við ga...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Berglind Ýr Hrafnsdóttir 1985-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2018
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/30876
Description
Summary:Í skýrslu þessari er verið að leytast eftir svari við rannsóknarspurningunni „Hver er munurinn á aðgengi inn á húsnæðismarkað og lánakjörum á húsnæðislánum á Íslandi og í Noregi?“ Við vinnslu skýrslunar voru lánamarkaðir á Íslandi og í Noregi skoðaðir ásamt því að nota megindlega aðferðafræði við gagnaöflun. Í framhaldi var farið í eigindlega aðferðafræði við rannsóknina. Viðmælendur fengu sendan lista með spurningum sem tengjast upplifun þeirra á lántöku á húsnæðisláni á þessum tveimur mörkuðum. Fræðileg umfjöllun skýrslunar snýr að hugtökum sem tengjast lántökum ásamt því að farið var ýtarlega yfir hugtök sem tengjast efnahagsmálum þjóðanna svo sem peningastefnu landanna, stýrivexti, verðtryggingu og vísitölur. Skýrsluhöfundur vildi fá að vita hvaða skoðun almenningur hafði á málefninu þar sem mikið er rætt um þessi mál í þjóðfélaginu. Skoðun hins almenna borgara kemur ekki alltaf vel í ljós heldur er meira verið að skoða tölur og rannsóknir sem tala sínu máli en skýrsluhöfundi fannst sjónarmið almennings mega koma fram líka í þessu samhengi. Gögnum um kjör á lánamarkaði var aflað í gegnum heimasíður bankanna. Megindleg rannsókn var gerð með því að senda tölvupóst til viðmælenda í rannsókninni ásamt því að tekin voru viðtöl við viðmælendur með eigindlegri aðferðafræði sem skýrsluhöfundur lagði svo huglægt mat á. Skýrsluhöfundur dregur þá ályktun að auðveldara sé að komast inn á húsnæðismarkað í Noregi en á Íslandi þar sem boðið er upp á möguleika á 100% lánveitingu þó svo að skýrsluhöfundur telji það ekki endilega skynsamlega fjárfestingu að taka 100% lán. Lykilorð: Húsnæðismarkaður, vextir, verðbólga, stýrivextir og lánakjör. This report examines two housing markets and compares two countries together Iceland and Norway. The purpose of this project is to get an idea of the experience of people who are buying a housing in the process that needs to be done and also whether it is easier to enter the housing market at either location. There were various terms related to the issue, such as the policy rate, ...