Nýsköpun og markaðssetning : mikilvægi aðgerðaáætlana við markaðssetningu vöru

Undanfarin ár hafa vinsældir heilsuvara farið vaxandi á Íslandi. Þessi þróun hefur skapað ný tækifæri og nýja markaði fyrir sjávarútveginn í gegnum nýsköpun og þróunarstarf á hliðarafurðum. Árið 2015 kom frumkvöðlafyrirtækið Codland fram með nýja vöru, heilsudrykk sem er blandaður með kollageni úr þ...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Margrét Albertsdóttir 1989-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2018
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/30820
Description
Summary:Undanfarin ár hafa vinsældir heilsuvara farið vaxandi á Íslandi. Þessi þróun hefur skapað ný tækifæri og nýja markaði fyrir sjávarútveginn í gegnum nýsköpun og þróunarstarf á hliðarafurðum. Árið 2015 kom frumkvöðlafyrirtækið Codland fram með nýja vöru, heilsudrykk sem er blandaður með kollageni úr þorskroði. Markmiðið með þessu lokaverkefni er að skilgreina markhóp fyrir kollagendrykkinn Öldu á innanlandsmarkaði og sýna fram á möguleika í formi markaðssetningar til að auka markaðshlutdeild vörunnar hér á landi. Til að fá innsýn í viðfangsefnið var eigindlegri rannsóknaraðferð beitt í formi viðtala. Einnig voru skilgreind mikilvæg hugtök tengd markaðsfræði með tilliti til vörunnar. Unnið var með markaðsgreiningar bæði á nær- og fjærumhverfi markaðarins með SVÓT greiningu. Lögð voru drög að aðgerðaráætlun þar sem stuðst var við miðaða markaðsfærslu, söluráðanna sjö og kynningarráðanna sex. Niðurstöður leiddu í ljós að ákjósanlegur markhópur fyrir vöruna eru konur á aldrinum 35-55 ára sem vilja hugsa vel um heilsu og húð sína. Markaðsstarf á vörunni hefur verið takmarkað við umfjöllun í fjölmiðlum. Höfundur telur að sóknarfæri séu til að gera betur. Mikil heilsuvakning hefur verið í íslensku samfélagi á síðustu árum og markaður fyrir heilsutengdar vörur hefur stækkað. Hægt er að bæta markaðssetningu á vörunni töluvert með markvissum og skýrum skilaboðum til markaðarins. Það er því það mat höfundar að varan gæti aukið markaðshlutdeild sína töluvert ef rétt er haldið á spilunum. Lykilorð: Markaðssetning, nýsköpun, sjávarútvegur, kollagen, markaðshlutdeild. In recent years, the popularity of health products have grown in Iceland. This development has created new opportunities and new markets for the marine industry through innovation and development of the byproducts of fish. In 2015, the entrepreneurial company Codland introduced their first product made from byproduct of fish. The all natural icelandic lemonade drink made from marine collagen from codskin. The goal of this final project is to define a target group ...