Viðhorf til markaðssamskipta gegnum áhrifavalda á samfélagsmiðlum og áhrif þeirra á kauphegðun neytenda
Þróun á stafrænni markaðssetningu hefur aukist til muna og er ein helsta ástæða þess aukning notenda á Veraldarvefnum. Í kjölfar þess hefur markaðssetning tekið breytingum á síðustu árum og fela þær breytingar meðal annars í sér að fyrirtæki séu í auknum mæli að víkja frá hefðbundnum markaðsleiðum o...
Main Authors: | , |
---|---|
Other Authors: | |
Format: | Thesis |
Language: | Icelandic |
Published: |
2018
|
Subjects: | |
Online Access: | http://hdl.handle.net/1946/30811 |
Summary: | Þróun á stafrænni markaðssetningu hefur aukist til muna og er ein helsta ástæða þess aukning notenda á Veraldarvefnum. Í kjölfar þess hefur markaðssetning tekið breytingum á síðustu árum og fela þær breytingar meðal annars í sér að fyrirtæki séu í auknum mæli að víkja frá hefðbundnum markaðsleiðum og vilja reyna á þau markaðstækifæri sem standa til boða á samfélagsmiðlum. Vegna þess hvernig samfélagsmiðlar hafa auðveldað fólki öll samskipti þurfa fyrirtæki í enn ríkari mæli en áður að huga vel að viðhorfum neytenda til fyrirtækisins og vörumerkja þess. Ritgerð þessi er 12 ECTS eininga lokaverkefni til B.Sc. gráðu í viðskiptafræði við Háskólann í Reykjavík. Verkefnið byggir á rannsókn og var markmiðið að greina hvort breytingar eigi sér stað á áhrifamætti markaðssamskipta gegnum áhrifavalda ef fleiri en einn áhrifavaldur kynnir sömu skilaboð á sama tíma. Einnig var kannað hver viðhorf neytenda væru til þessarar tilteknu vöru/þjónustu. Í rannsókninni var notast við eigindlega rannsóknaraðferð í formi djúpviðtala, sem tekin voru við tíu ungar konur. Niðurstöður rannsóknarinnar leiddu í ljós að áhrifamáttur markaðssamskipta getur orðið fyrir breytingum, eftir því hversu mikill fjöldi áhrifavalda auglýsir sömu vörur á sama tíma. Enn fremur leiddu niðurstöður í ljós að viðhorf þátttakenda til áhrifavaldamarkaðssetningar almennt sé fremur jákvætt. Þegar margir áhrifavaldar auglýsa sömu vörur eða þjónustu á sama tíma verður viðhorfið hins vegar töluvert neikvæðara. |
---|