Netverslun sjávarafurða í Kína : tækifæri sem ekki má missa af?

Verkefnið er lokað til 20.04.2028. Sjávarútvegurinn hefur verið megin útflutningsgreinin hér á landi. Alþjóðleg viðskipti með sjávarafurðir hefur vaxið mikið á síðustu áratugum. Kína er stærsta sjávarútvegþjóð í heimi og hefur verið stór markaður fyrir íslenskar sjávarafurðir. Umbreyting er að eiga...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Anna Borg Friðjónsdóttir 1994-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2018
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/30753
Description
Summary:Verkefnið er lokað til 20.04.2028. Sjávarútvegurinn hefur verið megin útflutningsgreinin hér á landi. Alþjóðleg viðskipti með sjávarafurðir hefur vaxið mikið á síðustu áratugum. Kína er stærsta sjávarútvegþjóð í heimi og hefur verið stór markaður fyrir íslenskar sjávarafurðir. Umbreyting er að eiga sér stað í sölu á sjávarafurðum þar í landi þar sem salan er að færast frá því að vera á gamaldags blautmörkuðum í sölu gegnum netverslanir. Fyrirtæki sem hafa verið að selja til Kína þurfa að vera í stakk búinn til að takast á við þær markaðsbreytingar sem eru að eiga sér stað og er markaðssetning lykilþátturinn í að ná samkeppnisforskoti á netverslunarmarkaðnum. Í þessu verkefni verður gerð grein fyrir eðli og umhverfi helstu netverslana í Kína. Verkefnið er unnið í samstarfi við Iceland Seafood International og felur í sér að meta hvaða leið sé skynsamlegust til að hefja sölu á netverslunarmarkaði í Kína. The fishing industry has been the main export sector in Iceland. International trade in fishery products has grown substantially in recent decades. China is the world’s largest fishery nation and has been a major market for Icelandic seafood. Transformation is taking place in the sale of seafood products in China. Sales are moving from old-fashioned wet markets in sales through e-commerce. Companies that have been exporting seafood to China need to be in a position to cope with the market changes that are taking place. Right Marketing mix is key to achieving a competitive advantage in the e-commerce business. This thesis will describe the nature and environment of Chinas major e-commerce companies.