Pektín úr eplahrati og pektínsundrandi virkni baktería úr íslenskri náttúru

Pektínsundrandi örverur eru algengar í náttúrunni og margar hafa verið rannsakaðar í sambandi við pektínasavirkni, bæði dreif- og heilkjörnungar. Í stofnasafni Auðlindardeildar Háskólans á Akureyri er að finna hundruði bakteríustofna af ættkvíslunum Pseudomonas, Sphingomonas og Flavobacterium en hei...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Radoslaw Boleslaw Dudziak 1980-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2018
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/30750
Description
Summary:Pektínsundrandi örverur eru algengar í náttúrunni og margar hafa verið rannsakaðar í sambandi við pektínasavirkni, bæði dreif- og heilkjörnungar. Í stofnasafni Auðlindardeildar Háskólans á Akureyri er að finna hundruði bakteríustofna af ættkvíslunum Pseudomonas, Sphingomonas og Flavobacterium en heimildir benda til að Pseudomonas og Flavobacterium ættkvíslir séu gjarnan færar um að brjóta niður flóknar fjölsykrur eins og pektín. Hins vegar eru fáar heimildir um pektínasavirkni hjá Sphingomonas ættkvíslinni en 4 stofnar voru notaðir í þessari tilraun. Fyrst voru valdir 48 stofnar af ofangreindum ættkvíslum og skimað var eftir myndun litaeyða við niðurbrot af pektíni. Af þeim stofnum sem gáfu skýrasta svörun voru fáeinir valdir til nánari greiningar á pektínasavirkni. Útdráttur á pektíni hefur lengi verið þekktur í matvæla- og örverufræði. Til eru mismunandi leiðir, sumar eru einfaldar en aðrar flóknari, það fer eftir því í hvaða tilgangi pektín er einangrað og hvort viðkomandi vilji fá sem hreinast pektín. Í þessari rannsókn var Garna aðferð prófuð til að draga pektín úr eplahrati og carbazole aðferð var notuð við mælingar á galaktúroniksýru við mismunandi sýrustig. Einnig var kannaður munur á bakteríuvexti í vökvaætinu þar sem annars vegar pektín frá Sigma-Aldrich var notað og pektín sem dregið var úr eplahrati hins vegar. Niðurstöður leiddu í ljós að við útdrátt á pektíni úr eplahrati hefur sýrustig (pH) áhrif á magn pektíns og magn galaktúroniksýru. Af 48 bakteríutegundum af ættkvíslum Pseudomonas, Sphingomonas og Flavobacterium, sýna eingöngu 6 þeirra einhverskonar pektínasavirkni en 3 bestu voru valdar til frekari rannsókna sem sýndu mun á vexti í æti þar sem „iðnaðar“ pektín frá Sigma-Aldrich var annars vegar og einangrað pektín úr eplahrati hins vegar. Among bacterial genera well known for pectinolytic activity are Pseudomonas and Flavobacterium. Previous researches indicates that Pseudomonas and Flavobacterium bacteria are often capable of breaking complex polysaccharides such as pectin. However, ...