Sviptum hulunni : forvarnir og fræðsla um kynferðislegt ofbeldi gegn börnum

Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Þessi ritgerð er lokaverkefni til B.Ed gráðu við kennaradeild Háskólans á Akureyri, tilgangur hennar er að dýpka skilning á kynferðislegu ofbeldi með því augnamiði að vekja kennarastéttina og alla sem koma að umönnun barna til umhugsunar...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Hafdís Helga Þorvaldsdóttir
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2005
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/307
Description
Summary:Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Þessi ritgerð er lokaverkefni til B.Ed gráðu við kennaradeild Háskólans á Akureyri, tilgangur hennar er að dýpka skilning á kynferðislegu ofbeldi með því augnamiði að vekja kennarastéttina og alla sem koma að umönnun barna til umhugsunar og hvetja þau til að kynna sér hvað kynferðislegt ofbeldi er og hvað hægt sé að gera til að minnka eða koma í veg fyrir að börnin okkar séu beitt þessu ljótasta misrétti sem til er. Höfundi fannst þetta viðfangsefni verðugt þar sem rannsóknir benda til að afleiðingar kynferðislegs ofbeldis geti haft langvarandi og djúpstæð áhrif á einstaklinginn. Einnig kemur fram niðurstaða um rannsókn sem var gerð á umfangi kynferðislegrar misnotkunar hér á landi. Einnig er minnst á Barnahús sem sinnir málefnum barna sem grunur leikur á að hafi sætt kynferðislegri áreitni. Fjallað verður um tildrög Barnahúss, starfsemi þess og hvaða þjónustu Barnshús býður uppá. Fjallað verður um tvo fræðimenn sem hafa verið mjög áberandi í fræðiheiminum með hugtökin fjölgreindir og tilfinningagreind, en það eru Howard Gardner og Daniel Goleman. Fléttað verður inní þeirra hugmyndafræði hvernig hægt er að efla sjálfsímynd barnsins til að minnka líkurnar á því að það lendi í kynferðislegu ofbeldi. Höfundur lagði fram könnun til leikskólastjóra í 50 leikskólum á landinu og setti fram eina spurningu: Fá kennarar fræðslu í leikskólum um kynferðislegt ofbeldi gegn börnum? Einnig var þeim gefið tækifæri á að koma öðru á framfæri ef þess var óskað. Komið verður lítillega inná skilgreininguna lífsleikni, fjallað verður um hvernig kennari geti verið með forvarnir og fræðslu gegn kynferðislegu ofbeldi og hvernig hægt sé að undirbúa kennara til að vera stakk búnir að vera með fræðslu og forvarnir í starfi sínu gegn kynferðislegu ofbeldi. Niðurstöður úr ritgerðinni gefa til kynna að mikilvægt sé að greina einkenni kynferðislegs ofbeldis gegn börnum sem fyrst svo hægt sé að draga sem mest úr langvarandi áhrifum þess. Einnig er margt sem kennari getur gert í ...