„Að fortíð skal hyggja, ef frumlegt skal byggja“. Nýtt miðbæjarskipulag á Selfossi

Þessi 60 eininga meistararitgerð í þjóðfræði fjallar um tilvist fortíðar í samtímanum. Ritgerðin byggir á eigindlegri rannsókn, aðallega djúpviðtölum sem tekin voru á tímabilinu október 2016 til desember 2017. Um er að ræða tilviksrannsókn þar sem nýju miðbæjarskipulagi á Selfossi eru gerð skil. Í t...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Vilhelmína Jónsdóttir 1979-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2018
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/30641
Description
Summary:Þessi 60 eininga meistararitgerð í þjóðfræði fjallar um tilvist fortíðar í samtímanum. Ritgerðin byggir á eigindlegri rannsókn, aðallega djúpviðtölum sem tekin voru á tímabilinu október 2016 til desember 2017. Um er að ræða tilviksrannsókn þar sem nýju miðbæjarskipulagi á Selfossi eru gerð skil. Í tillögunni um nýjan miðbæ er fyrirhugað að endurgera ríflega þrjátíu hús sem áður stóðu víðs vegar um landið en brunnu, voru rifin eða eyðilögðust með öðrum hætti. Viðmælendur vörpuðu ljósi á með hvaða hætti fólk upplifir fortíðina og hvernig tengsl við hana verða til í gegnum úrvinnsluferli merkingarmyndunar. Efnisleg fyrirbæri, líkt og hús, eru ekki nauðsynleg í þessu ferli en geta verið sem tæki eða verkfæri í ferlinu. Fram komu ólík sjónarmið til sanngildis og þess hvort og með hvaða hætti tillagan um nýjan miðbæ á Selfossi ber fortíðinni trúverðugt vitni. Í viðhorfunum birtist mikilvægi þess að húsin sem fyrirhugað er að endurgera hefðu merkingarbæra sögn í hugum íbúa sem og að þau féllu að söguvitund þeirra og þekkingu. Fram kom með hvaða hætti sviðsetning á fortíðinni féll að sjálfsmynd bæjarbúa og hvernig hún hefði áhrif á ímynd bæjarins. Þá kom einnig fram mikilvægi þess að íbúar hefðu möguleika til að hafa áhrif á ákvörðunartöku um uppbyggingu á miðbænum sem og möguleika til áhrifa og umsköpunar. The thesis examines how the past enters the present through a study of a plan to reconstruct old buildings and its reception. It is a case study of a proposal for a new town-center in the municipality of Selfoss in Southern Iceland, where over thirty recreations of historical buildings are to be re-erected. The buildings were originally situated in different parts of Iceland but are no longer in existence, having been destroyed at some stage, either by fire or demolition. The study explores different views expressed by stakeholders and the public in analyzing why, how and to what extent people perceive the buildings as signifying a credible past. The thesis is 60 ECTS units, submitted for partial fulfillment of ...