,,Þetta er pínu eins og að fara í fótabað í stígvélum" Rýnihóparannsókn á viðhorfum unglingspilta til smokkanotkunar.

Bakgrunnur: Smokkanotkun meðal unglingspilta hér á landi er minni en í ýmsum Evrópulöndum. Slík áhættuhegðun getur leitt til þess að þeir eru í aukinni hættu á kynsjúkdómasmiti. Nýgengi klamydíusmita á Íslandi er með því hæsta sem þekkist í heiminum. Einnig hefur tíðni ótímabærra þungana meðal ungli...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Sigurbjörg Lind Ellertsdóttir 1992-, Snæfríður Jóhannesdóttir 1993-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2018
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/30566
Description
Summary:Bakgrunnur: Smokkanotkun meðal unglingspilta hér á landi er minni en í ýmsum Evrópulöndum. Slík áhættuhegðun getur leitt til þess að þeir eru í aukinni hættu á kynsjúkdómasmiti. Nýgengi klamydíusmita á Íslandi er með því hæsta sem þekkist í heiminum. Einnig hefur tíðni ótímabærra þungana meðal unglingsstúlkna verið hærri hérlendis miðað við önnur Norðurlönd. Tilgangur: Tilgangur rannsóknarinnar er að skoða hvaða þættir skipta máli við smokkanotkun unglingspilta, bæði hvetjandi og letjandi þættir. Aðferð: Rannsóknin grundvallast á eigindlegri aðferð, rýnihóparannsókn. Þátttakendur voru nemendur í framhaldsskólum í Reykjavík og á Ákureyri. Þátttakendur voru valdir með tilgangs- og snjóboltaúrtaki. Viðtölin voru skráð frá orði til orðs og greind með rammaaðferð Gale o.fl. (2013). Niðurstöður: Tekin voru sex rýnihópaviðtöl, þrjú í Reykjvik og þrjú á Akureyri. Alls tóku 35 unglingspiltar þátt í rannsókninni og voru þeir á aldrinum 18-23 ára. Niðurstöður sýndu þrjú þemu, sem voru „að þekkja smokkinn“, „að hafa smokkinn í hendi“ og „notkunin sjálf - þegar á reynir". Fram kom að það helsta sem hindraði notkun smokka var takmörkuð kynfræðsla, skortur á samræðum við kynlífsfélaga, neikvæð viðhorf, takmarkað aðgengi og augnablikið. Það helsta sem hvatti til smokkanotkunar voru mögulegar afleiðingar áhættuhegðunar, jákvæð viðhorf og sjálfsöryggi. Ályktanir: Byggt á niðurstöðum rannsóknarinnar teljum við þörf á að bæta fræðslu um kynheilbrigði. Kennarar í grunn- og framhaldsskólum landsins þurfa að fá þjálfun til að koma kynfræðsluefni betur áleiðis til unglinga. Smokkanotkun unglingspilta er mikilvægur þáttur hvað varðar kynheilbrigði og gera þarf smokkinn sýnilegri og aðgengilegri. Lykilorð: Unglingspiltar, smokkanotkun, kynheilbrigði, áhættuhegðun, hindrandi þættir, hvetjandi þættir. Background: Condom use among adolescent boys in Iceland is lower than in many European countries. Such sexual risk behavior can lead to an increase in STIs. Iceland has one of the highest rates of sexually transmitted clamydia in the world. ...