Tengsl hitastigs á Íslandi á árunum 1961-2009 við hnattrænar hitastigsbreytingar og NAO

Hnattræn hlýnun af mannavöldum er talin vera mikil ógn fyrir mannkynið í nálægri framtíð. Nákvæmar og áreiðanlegar upplýsingar um hitastig í fortíðinni eru nauðsynlegar til að geta spáð fyrir um þróun hitastigs í framtíðinni. Ísland er vel staðsett fyrir veðurfarsrannsóknir vegna staðsetningar lands...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Karl Jóhann Guðnason 1981-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2009
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/3054
Description
Summary:Hnattræn hlýnun af mannavöldum er talin vera mikil ógn fyrir mannkynið í nálægri framtíð. Nákvæmar og áreiðanlegar upplýsingar um hitastig í fortíðinni eru nauðsynlegar til að geta spáð fyrir um þróun hitastigs í framtíðinni. Ísland er vel staðsett fyrir veðurfarsrannsóknir vegna staðsetningar landsins á mörkum kaldra og hlýrra loft- og hafsstrauma. Markmið þessarar rannsóknar var að kanna tengsl hnattrænna hitastigsbreytinga við hitastig á Íslandi á tímabilinu 1961-2009 og skoða hvort hitabreytingar hér við land eru óvenjulegar með tilliti til hitastigs síðustu þúsundir ára. Einnig var markmiðið að finna tengsl á milli Norður-Atlantshafssveiflunnar (e. North Atlantic Oscillation - NAO) og hitastig á Íslandi. Niðurstaða rannsóknarinnar er að hnattrænt hitastig yfirborðs og lofthjúps jarðar sýna í grófum dráttum sömu hitafarsbreytingar. Samkvæmt hitastig síðustu þúsunda ára eru nútíma hitastigsbreytingar á 20. öldinni ekki óvenjulegar. Ekki eru bein tengsl við NAO og hitastig hér við land, NAO getur bæði verið jákvætt og neikvætt í köldum árum og öfugt. Náttúrulegar sveiflur eru miklar hér við land. Ekki er eining meðal vísindamanna um þátts náttúrulegs breytileika veðurfars annars vegar og losun gróðurhúsalofttegunda mannkyns hinsvegar á hlýnun jarðar og hvað sé megin orsök hnattrænna veðurfarsbreytinga.