Hvað dregur erlenda ferðamenn í þjóðgarðinn Snæfellsjökul utan háannatíma?

Ferðalög eru orðin hluti af lífi fólks og aukning ferðamanna milli landa eykst þar af leiðandi með hverju árinu um allan heim. Ástæður þessarar aukningar eru margvíslegar, fólk hefur ef til vill meiri frítíma nú en áður og ferðalög eru að verða sífellt ódýrari. Ákveðnir ýti- og togk...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Ásta Ólafsdóttir 1991-, Karen Ósk Kristjánsdóttir 1993-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2018
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/30532
Description
Summary:Ferðalög eru orðin hluti af lífi fólks og aukning ferðamanna milli landa eykst þar af leiðandi með hverju árinu um allan heim. Ástæður þessarar aukningar eru margvíslegar, fólk hefur ef til vill meiri frítíma nú en áður og ferðalög eru að verða sífellt ódýrari. Ákveðnir ýti- og togkraftar hafa hins vegar áhrif á það hvort og hvert fólk ferðast. Í þessari rannsókn er sjónum beint að því hvað það er sem dregur erlenda ferðamenn til að heimsækja þjóðgarðinn Snæfellsjökul utan háannatíma, hver upplifun þeirra er af svæðinu og hversu vel upplýstir þeir eru um það. Spurningakönnun var lögð einungis fyrir erlenda ferðamenn í þjóðgarðinum Snæfellsjökli í mars 2018. Niðurstöður sýna að ferðamenn sem sækja heim þjóðgarðinn Snæfellsjökul eru almennt ekki vel upplýstir um svæðið. Niðurstöður sýna jafnframt að upplifun þeirra fer fram úr þeim væntingum sem þeir höfðu áður. Það sem einkennir þá erlenda ferðamenn sem heimsækja þjóðgarðinn er að dvalarlengd þeirra á Íslandi er almennt lengri en meðal dvalarlengd erlendra ferðamanna sem heimsækja Ísland utan háannatíma. Það má því draga þá ályktun að þeir ferðamenn sem leggja leið sína á Snæfellsnes hafi auka dag eða daga til þess að heimsækja fleiri staði eins og Snæfellsnes eftir að hafa skoðað aðra vinsælli áfangastaði á Íslandi.