Að fanga raddirnar: Áfangastaðaáætlun DMP og þátttaka heimamanna

Viðfangsefni rannsóknarinnar er Áfangastaðaáætlun DMP og þátttaka heimamanna í því verkefni. Markmið rannsóknarinnar er að kanna framvindu DMP vinnunnar á Norðurlandi og þá sérstaklega á Húsavík. Sérstök áhersla verður lögð á hvernig þátttöku hins almenna íbúa á Húsavík hefur verið háttað til þessa....

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Silja Árnadóttir 1992-, Guðrún Elín Gísladóttir 1994-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2018
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/30531
Description
Summary:Viðfangsefni rannsóknarinnar er Áfangastaðaáætlun DMP og þátttaka heimamanna í því verkefni. Markmið rannsóknarinnar er að kanna framvindu DMP vinnunnar á Norðurlandi og þá sérstaklega á Húsavík. Sérstök áhersla verður lögð á hvernig þátttöku hins almenna íbúa á Húsavík hefur verið háttað til þessa. Í verkefnum er tengjast skipulagi ferðaþjónustunnar geta komið upp ýmsar áskoranir, meðal annars vegna flækjustigs greinarinnar, en snertifletir hennar eru ótal margir. Rannsókn þessi er eigindleg viðtalsrannsókn byggð á grundaðri kenningu og voru tekin tíu viðtöl við bæði verkefnastjóra DMP og Húsvíkinga. Niðurstöður okkar leiddu í ljós að verkefni á borð við DMP er mjög þarft innan ferðaþjónustunnar enda hafa flestir einhverja skoðun á uppbyggingu hennar. Það er þó margt sem betur mætti fara í DMP ferlinu. Það hefði til að mynda mátt eyða meiri tíma í undirbúning og skipulag svo verkefnið gæti fallið betur að hverju svæði fyrir sig. Þá væru aðilar sem sjá um framkvæmd þess betur í stakk búnir til þess að takast á við það. Algengt er að raddir óbeinna hagaðila, á borð við íbúa, heyrist síður og mikilvægi þeirra sett aftast í virðiskeðjuna. Við framkvæmd verkefnisins á Húsavík var einungis ein aðferð notuð, íbúafundir, til að ná til heimamanna og var þátttaka íbúa dræm. Við teljum eina af ástæðum þess vera einhæfar þátttökuaðferðir og teljum því nauðsynlegt að nota fjölbreyttari aðferðir til þess að fanga raddir þeirra sem minnst heyrast The research subject in this paper is the Destination Management Plan (DMP) in Iceland and local participation within it. The objective of the research is to look at the progress of the DMP work in the Northern part of Iceland and in Húsavík in particular. An emphasis will be on how local participation in Húsavík has been conducted in the past. Various challenges can come up regarding the organization of projects related to tourism, such as the fact that tourism and its activity can affect the society in multiple ways. A qualitative research was conducted where ten people, both DMP ...