Island als Reiseziel der DACH-Länder: Welche Faktoren bzw. Ereignisse beeinflussen die Reiseentscheidung?

Eftirfarandi ritgerð er lokaverkefni til B.A. prófs í þýsku við Mála- og menningardeild Háskóla Íslands. Erlendir ferðamenn hafa komið til Íslands í áranna rás en síðustu árin hefur þeim fjölgað mjög mikið. Ástæður þessarar fjölgunar eru af ýmsum toga. Ein þeirra gæti stafað af mikilli umfjöllun um...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Aldís Brynja Schram 1969-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:German
Published: 2018
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/30491
Description
Summary:Eftirfarandi ritgerð er lokaverkefni til B.A. prófs í þýsku við Mála- og menningardeild Háskóla Íslands. Erlendir ferðamenn hafa komið til Íslands í áranna rás en síðustu árin hefur þeim fjölgað mjög mikið. Ástæður þessarar fjölgunar eru af ýmsum toga. Ein þeirra gæti stafað af mikilli umfjöllun um Ísland í kjölfar ákveðinna atburða sem hafa átt sér stað á undanförnum árum og ennfremur vaxandi samkeppni flugfélaga sem bjóða upp á ódýrari flugfargjöld til Íslands. Ferðaþjónustan hefur þar af leiðandi vaxið ört sem atvinnugrein og er nú orðin stærsta útflutningsgrein landsins. En hvaðan kemur eiginlega hugmyndin að Íslandsferð og hvaða aðdráttarafl hefur Ísland í augum erlendra ferðamanna? Geta hugsanlega atburðir eins og efnahagskreppa, eldgos eða jafnvel árangur fótboltalandliðs lítillar eyju í Atlantshafinu á stóru fótboltamóti vakið áhuga þeirra á landinu og haft áhrif á ákvörðunina að ferðast til Íslands? Þessum spurningum velti ég upp í ritgerð minni en hún fjallar um áfangastaðinn Ísland þar sem einblínt er á þýska, svissneska og austurríska ferðamenn og þeirra þátta og atburða sem hafa áhrif á þeirra ákvörðunartöku að ferðast til Íslands. Ritgerðin skiptist í 5 kafla. Í fyrsta kafla er inngangurinn. Annar kafli skiptist upp í tvo kafla. Sá fyrri fjallar um landið Ísland, m.a. frá jarðfræðilegu sjónarhorni og seinni kaflinn, sem skiptist niður í þrjá undirkafla, þar sem gefið er stutt yfirlit yfir sögu landsins frá landnámi til lýðveldisstofnunar, menningu og hesta. Í þriðja kafla er annars vegar sagt frá ferðaþjónustu á 19.öld, þ.a.s. þegar farið var að tala um Ísland sem ferðamannaland og hinsvegar ferðaþjónustunni eins og hún blasir við okkur í dag. Í fjórða kafla er greint frá atburðum síðustu ára og hugsanlegum áhrifum þeirra á auknum áhuga ferðamanna á Íslandi og á ferðalögum þeirra hingað. Þessir atburðir eru: Efnahagshrunið haustið 2008, eldgosið í Eyjafjallajökli vorið 2010, markaðsátakið Inspired by Iceland, þátttaka Íslands sem heiðursgests á Bókamessunni í Frankfurt haustið 2011 og að lokum ...