Ebola representations in media and other public domains in Iceland

Ebólufaraldurinn í Vestur-Afríku hlaut töluverða umfjöllun í fjölmiðlum og á samfélagsmiðlum á Íslandi. Þrátt fyrir að litla Ísland sé staðsett langt frá upptökum faraldursins, var hann títt umræddur á veraldarvefnum. Á Landspítalanum voru gerðar veigamiklar varúðarráðstafanir ef ske kynni að einsta...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Margrét Hanna Magnúsdóttir 1984-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:English
Published: 2018
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/30470
Description
Summary:Ebólufaraldurinn í Vestur-Afríku hlaut töluverða umfjöllun í fjölmiðlum og á samfélagsmiðlum á Íslandi. Þrátt fyrir að litla Ísland sé staðsett langt frá upptökum faraldursins, var hann títt umræddur á veraldarvefnum. Á Landspítalanum voru gerðar veigamiklar varúðarráðstafanir ef ske kynni að einstaklingur smitaður af Ebólu kæmi til landsins. Í þessari meistararitgerð voru textar og myndir sem tengdust atburðunum í Vestur-Afríku greindir með aðferðum orðræðugreiningar í þeim tilgangi að bera kennsl á helstu áhrifavalda á Íslandi sem stýrðu orðræðunni á meðan faraldurinn geisaði á árunum 2013-2016. Niðurstöðurnar benda til þess að fjögur mismunandi þemu eða orðrómar hafi einkennt orðræðuna. Þessi þemu voru ótti, reiði, skynsemisraddir og samsæriskenningar. Helstu áhrifavaldarnir voru fólkið sem tjáðu skoðanir sínar í athugasemdakerfum netmiðlanna, fjölmiðlafólkið sem skrifaði fréttir um atburðina í Vestur-Afríku, heilbrigðisstarfsfólkið sem gaf viðtöl sem og ýmsir einstaklingar sem tóku þátt í umræðum á umræðuvefjunum bland.is, vaktin.is og malefnin.com, sem eru vel þekktir á Íslandi. Niðurstöðurnar eru ræddar í samhengi við sambærilegar rannsóknir erlendis frá og út frá kenningum um Austurlandafræði, framandleika annarra og kerfislægt ofbeldi. Niðurstöður þessarar rannsóknar gætu nýst heilbrigðisyfirvöldum og öðrum í undirbúningi fyrir aðrar heilbrigðisógnir í framtíðinni. The Ebola epidemic in West Africa was vastly covered in Icelandic news and on social media. Even on Iceland being a small island, which is located far from the catastrophic events, it was a huge topic in the online community. The National University Hospital of Iceland went through extensive preparations to take care of an Ebola patient in the unlikely event that one would enter the country. In this thesis a discourse analysis was applied to texts and images gathered from various online sources to uncover the key opinion makers in Iceland during the time of the Ebola outbreak in West Africa 2013-2016. The results indicate that four different ...