Endómetríósa á Íslandi. Nýgengi, staðsetning og aðgerðir.

Inngangur: Endómetríósa (legslímuflakk) er langvinnur og erfiður sjúkdómur meðal kvenna sem getur haft mikil áhrif á lífsgæði þeirra og möguleika til barneigna. Sjúkdómurinn er algeng orsök verkja, óreglulegra blæðinga og ófrjósemi. Markmið rannsóknarinnar var að meta nýgengi og flokka sjúkdóminn e...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Ásdís Kristjánsdóttir 1994-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2018
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/30216
Description
Summary:Inngangur: Endómetríósa (legslímuflakk) er langvinnur og erfiður sjúkdómur meðal kvenna sem getur haft mikil áhrif á lífsgæði þeirra og möguleika til barneigna. Sjúkdómurinn er algeng orsök verkja, óreglulegra blæðinga og ófrjósemi. Markmið rannsóknarinnar var að meta nýgengi og flokka sjúkdóminn eftir alvarleika og staðsetningu fyrir árabilið 2001-2015. Efniviður og aðferðir: Skoðuð voru gögn frá þeim sjúkrastofnunum hér á landi þar sem aðgerðir til greiningar á endómetríósu höfðu getað farið fram, þ.e.a.s. Landspítala, Skt. Jósefsspítala, Sjúkrahúsinu á Akureyri, Heilbrigðisstofnun Vesturlands, Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, Heilbrigðisstofnun Suðurlands og Lækningu, einkarekinni stofnun. Fundnar voru konur með alþjóðlegu ICD-greiningarkóðana N80.0-N80.9 og sjúkraskrár þeirra, aðgerðarlýsingar og vefjagreiningasvör skoðuð. Staðsetningu endómetríósu í grindarholi var skipt í fimm flokka og sjúkdómnum í tvo flokka eftir alvarleika. Konur með adenomyosis (legslímu- og vöðvavilla) voru útilokaðar frá rannsókninni, sem og konur sem greindust fyrir 2001. Niðurstöður: Alls voru nýgreindar konur 1435 talsins á árunum 2001-2015 á aldrinum 15-69 ára, þar af 1346 nýgreindar á frjósemialdri, þ.e.a.s. 15-49 ára. Nýgengi var misjafnt milli ára, frá 5,9-13,3/10 000 en að meðaltali greindust 9,1/10 000 konur á ári á aldrinum 15-69 ára. Fyrir aldurinn 15-49 ára var nýgengi milli ára frá 6,7-16,4/10 000 og meðaltal 11,4/10 000. Meðalaldur við greiningu var 34,6 ár, yngsta konan sem greindist var 17 ára á meðan elsta var 66 ára. Greining var með kviðsjá hjá 80,9% kvennanna og staðfest með vefjarannsókn hjá 65,1%. Algengasta staðsetning endómetríósu var á eggjastokkum og neðarlega í grindarholi. Meirihluti kvennanna greindist með vægari form sjúkdómsins, þ.e.a.s. 68,9%, en 31,1% greindist með alvarlegri vefjaskemmdir. Ályktanir: Að meðaltali eru að greinast 95,7 konur á ári með endómetríósu, þar af þriðjungur með alvarlegri sjúkdóm. Nýgengi var svipað og í fyrri íslenskri rannsókn sem tók til áranna 1981-2000 og í nokkrum ...