Bókin um blekkinguna

Bók Þórbergs Þórðarsonar (1888-1974), Íslenzkur aðall (1938) fjallar um sumar í lífi Þórbergs og félaga hans í síldarvinnu á Akureyri árið 1912. Sögumaðurinn Þórbergur horfir á úr ákveðinni fjarlægð sem hann notar óspart til að varpa nýju ljósi á viðfangsefni sitt, gjarnan í skoplegu ljósi. Fjarlægð...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Álfdís Þorleifsdóttir 1984-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2018
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/30193
Description
Summary:Bók Þórbergs Þórðarsonar (1888-1974), Íslenzkur aðall (1938) fjallar um sumar í lífi Þórbergs og félaga hans í síldarvinnu á Akureyri árið 1912. Sögumaðurinn Þórbergur horfir á úr ákveðinni fjarlægð sem hann notar óspart til að varpa nýju ljósi á viðfangsefni sitt, gjarnan í skoplegu ljósi. Fjarlægðin markast af aldri og reynslu en jafnframt af meiri lífsþekkingu, þekkingu sem Þórbergur öðlast í gegnum kynni sín af jógafræðunum og guðspekinni, veturinn 1917-1918. Þau fræði höfðu afgerandi áhrif á heimsmynd hans og gildi og á þeim byggði hann önnur hugðarefni sín, sósíalismann, spíritismann og esperantó áhugann. Þessi lífsspeki Þórbergs varð einnig að leiðarstefi í öllu höfundarverki hans. Hér verður leitast við að lesa bókina Íslenzkan aðal inn í þau fræði og sýna þau í ljósi ákveðinna atriða eins og húmors og íróníu, í persónusköpun og undirliggjandi boðskap sögunnar.