Notkun og afgreiðsla neyðargetnaðarvarnataflna á Íslandi

Neyðargetnaðarvörn er skilgreind sem neyðarúrræði til að koma í veg fyrir þungun eftir óvarðar samfarir. Hún er notuð eftir að samfarir hafa átt sér stað, en þó áður en að kona er orðin þunguð. Lyfið kemur í veg fyrir getnað með því að hindra egglos og trufla sæðisflutning upp í eggjaleiðara að einh...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Margrét Lilja Heiðarsdóttir 1983-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2009
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/3010
Description
Summary:Neyðargetnaðarvörn er skilgreind sem neyðarúrræði til að koma í veg fyrir þungun eftir óvarðar samfarir. Hún er notuð eftir að samfarir hafa átt sér stað, en þó áður en að kona er orðin þunguð. Lyfið kemur í veg fyrir getnað með því að hindra egglos og trufla sæðisflutning upp í eggjaleiðara að einhverju leyti. Sölufyrirkomulagi á Íslandi svipar til þess sem er á Norðurlöndunum. Markmið rannsóknarinnar var að afla upplýsinga um hverjir væru helstu notendur neyðargetnaðarvarnartaflna á Íslandi og hvernig staðið væri að afgreiðslu lyfsins í apótekum. Spurningalisti var hannaður og lagður fyrir í 36 apótekum um allt land á tímabilinu 13. febrúar til 26. apríl. Flestir þátttakendur voru stúlkur á aldrinum 16-24 ára, eða 65,2%, um 52,2% kvenna bjuggu í foreldrahúsum og 54,2% voru enn í námi. Alls höfðu 84,5% lokið grunn- eða framhaldsskólamenntun og af foreldrum þeirra höfðu 79,9% feðra lokið framhalds- eða háskólamenntun og 69% mæðra. Um helmingur var í föstu sambandi. Vitneskju um neyðargetnaðarvörnina öfluðu flestir þátttakendur sér hjá vinum (53%). Um 88,8% notenda kusu að fara í apótek frekar en á aðrar heilbrigðisstofnanir til að nálgast lyfið. Flestallar konurnar álitu upplýsingarnar sem þær fengu frá lyfjafræðingnum góðar og meira en helmingur allra kvenna fengu upplýsingar um hvernig á að taka neyðargetnaðarvörnina, hvernig lyfið virkar og hverjar eru mögulegar aukaverkanir, en aðeins litill hluti fékk upplýsingar um aðrar getnaðarvarnir. Aðstöðu til fræðslu og trúnaðarsamtala kann að vera áfátt í mörgum apótekum. Neyðargetnaðarvörnin virðist einkum notuð af litlum hópi ungra og nokkuð vel menntaðra kvenna með svipaðan bakgrunn.