Straumhvörf á greiðsluþjónustumarkaði: Áhrif tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 2015/2366 um greiðsluþjónustu (PSD II) á núverandi markaðsaðila.

Í þessari ritgerð verður gerð grein fyrir nýrri löggjöf Evrópusambandsins um greiðsluþjónustu (PSD II) er kom til framkvæmda 13. janúar 2018 innan Evrópska efnahagssvæðisins. Straumhvörf hafa orðið á greiðsluþjónustumarkaði Evrópusambandsins og virðist ljóst að með PSD II ætlar sambandið sér að stan...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Agnes Vestmann 1992-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2018
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/29968
Description
Summary:Í þessari ritgerð verður gerð grein fyrir nýrri löggjöf Evrópusambandsins um greiðsluþjónustu (PSD II) er kom til framkvæmda 13. janúar 2018 innan Evrópska efnahagssvæðisins. Straumhvörf hafa orðið á greiðsluþjónustumarkaði Evrópusambandsins og virðist ljóst að með PSD II ætlar sambandið sér að standa framarlega á sviði rafrænnar greiðsluþjónustu. Með gildistöku PSD II fylgja háleit markmið um jafnari samkeppnisstöðu markaðsaðila, aukna neytendavernd og tæknilega hlutlausa löggjöf um greiðsluþjónustu. Í ljósi þess að Ísland er þátttakandi í innri markaði Evrópusambandsins fyrir tilstuðlan samningsins um Evrópska efnahagssvæðið hafa gerðir sambandsins um frjálst flæði fjármagns, þ. á m. greiðsluþjónustu, þýðingu hér á landi. Þungamiðja ritgerðarinnar fjallar um áhrif PSD II á núverandi markaðsaðila, en íslensku bankarnir hafa verið með umsvifameiri greiðsluþjónustuveitendum fram að gildistöku gerðarinnar. Leitast verður því við að gera grein fyrir þeim nýju kröfum sem gerðar eru til þeirra sem greiðsluþjónustuveitanda, sem og hvaða áskoranir og tækifæri innkoma nýrra aðila hafa í för með sér fyrir bankana. Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar liggur enn ekki fyrir, en þegar hefur verið hafist handa við undirbúning að frumvarpi að nýjum greiðsluþjónustulögum. Virðist sem svo að það verði ekki að lögum fyrr en í fyrsta lagi árið 2019. Directive (EU) 2015/2366 of the European Parliament and of the Council on payment services in the internal market (PSD II) is a new and revised payment services directive, with which the European Union has established that it intends to be in the frontier in the further development of the retail payments market. The directive is applicable from 13 January 2018 and with it come ambitious goals of a level-playing field between market participants, increased consumer protection and technologically neutral legislation of payment services. Through the Agreement on the European Economic Area (EEA Agreement), Iceland participates fully in the internal market of the European Union. Acts ...