Þróun kynjajafnréttis á Alþingi

Í þessari ritgerð er farið yfir þróun kynjajafnréttis á Alþingi. Niðurstöður hennar eru kynntar og gert grein fyrir því hvernig þróunin hefur átt sér stað. Það var enn fremur markmið og tilgangur ritgerðarinnar að skoða þessa þróun ásamt því að sjá hví þróunin sé hæg. Saga baráttunnar fyrir kynjajaf...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Ásdís Björg Björgvinsdóttir 1992-
Other Authors: Háskólinn á Bifröst
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2018
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/29728
Description
Summary:Í þessari ritgerð er farið yfir þróun kynjajafnréttis á Alþingi. Niðurstöður hennar eru kynntar og gert grein fyrir því hvernig þróunin hefur átt sér stað. Það var enn fremur markmið og tilgangur ritgerðarinnar að skoða þessa þróun ásamt því að sjá hví þróunin sé hæg. Saga baráttunnar fyrir kynjajafnrétti spannar vel yfir hundrað ár og er henni langt frá því að vera lokið. Sagt er að Ísland sé það ríki í heiminum sem er komið hvað lengst í kynjajafnréttismálum. Þrátt fyrir það á þjóðin enn langt í land með að ná fullkomnu kynjajafnrétti. Unnið var að ritgerðinni með því að afla heimilda um viðfangsefni. Þær heimildir voru ítarlega rýndar til að finna út hverjar hentuðu ritgerðinni best. Niðurstöður ritgerðarinnar leiddu meðal annars í ljós að á Íslandi hafa átt sér stað fimm stór stökk hvað varðar hlutföll kvenna á Alþingi. Ástæðurnar fyrir þessum stökkum hafa þó verið mismunandi. Óhætt er að segja að þróunin í átt til kynjajafnréttis á Alþingi virðist að mestu leyti, fara vaxandi. Það má þó telja þróunina vera nokkuð hæga, sérstaklega þegar litið er til þess að heil öld sé liðin frá því að íslenskar konur hlutu kjörgengi og kosningarétt. This thesis was aimed at the development of gender equality on Althingi. The findings on the topic are presented and it is explained how the development has occurred. It was also the goal and purpose of the thesis to go over the development as well as to see why the development is slow. The history of the fight for gender equality spans well over a hundred years and is far from being over. Iceland is said to be the country in the world that has come the farthest regarding gender equality. Despite that the nation still has a long way to go in achieving complete gender equality. The thesis was done by obtaining sources on the subject. These sources were thoroughly reviewed to find the ones that were the most suitable for the thesis. Among the things that the results of the thesis led to is that in Iceland there have been five large leaps regarding women’s rate in Althingi. The ...