Hugmyndafræði og leiðir í búsetu fólks með einhverfu

Markmið ritgerðarinnar er að fræðast um einhverfurófið og helstu flokka þess og einnig að kanna hvort unnið sé eftir ákveðinni hugmyndafræði í búsetu fólks með einhverfu í Reykjavík og hvaða leiðir séu farnar í vinnu með þessum hópi fólks. Tekin voru viðtöl við yfirmenn í þremur búsetukjörnum fólks...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Viktoría S. Ámundadóttir 1969-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2018
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/29716
Description
Summary:Markmið ritgerðarinnar er að fræðast um einhverfurófið og helstu flokka þess og einnig að kanna hvort unnið sé eftir ákveðinni hugmyndafræði í búsetu fólks með einhverfu í Reykjavík og hvaða leiðir séu farnar í vinnu með þessum hópi fólks. Tekin voru viðtöl við yfirmenn í þremur búsetukjörnum fólks með einhverfu. Niðurstöður rannsóknar eru þær að tekið er mið af ákveðinni hugmyndafræði á þessum stöðum og unnið eftir markvissum aðferðum og leiðum. Að mati viðmælenda gefur það góða raun að vinna eftir hugmyndafræðinni um Sjálfstætt líf og Þjónandi leiðsögn. Einnig eru farnar ýmsar aðrar leiðir í starfi eins og að vinna með myndrænt skipulag ásamt því að nota spjaldtölvur og skilar það góðum árangri. Fagleg og vönduð vinnubrögð eiga að einkenna þjónustu við fólk með fötlun. Ein leið til að efla fagmennsku í starfi með fólki sem á við fötlun að stríða er að taka mið af ákveðinni hugmyndafræði sem leiðir starfið og stuðla þannig að því að starfsfólkið vinni eftir sömu gildum.