Reykjavík Ritual : viðskiptaáætlun

Ætlunin með þessu verkefni er að gera viðskiptaáætlun fyrir fyrirtækið Reykjavík Ritual. Verkefni þetta er lokaverkefni til BS prófs í viðskiptafræði við Háskólann á Bifröst. Í náminu á Bifröst voru þeir áfangar sem snéru að rekstri og nýsköpun hvað áhugaverðastir að mati höfundar. Henni fannst því...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Guðrún Marsibil Heimisdóttir 1993-
Other Authors: Háskólinn á Bifröst
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2018
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/29694
Description
Summary:Ætlunin með þessu verkefni er að gera viðskiptaáætlun fyrir fyrirtækið Reykjavík Ritual. Verkefni þetta er lokaverkefni til BS prófs í viðskiptafræði við Háskólann á Bifröst. Í náminu á Bifröst voru þeir áfangar sem snéru að rekstri og nýsköpun hvað áhugaverðastir að mati höfundar. Henni fannst því gerð viðskiptaáætlunar tilvalin sem viðfangsefni lokaverkefnis. Hugmyndin að Reykjavík Ritual kviknaði hjá höfundi fyrir þó nokkrum árum og hefur hún verið að gæla við hugmyndina síðan. Áhugi hennar og vinkvenna á húð- og baðvörum frá íslenskum fyrirtækjum er mikill og þá sérstaklega vörum sem innihalda efni úr íslenskri náttúru. Markmið höfundar er að leggja grunn að stofnun fyrirtækisins Reykjavík Ritual og greina möguleika þess í framtíðinni. Ætlunin er að svara því hvort það sé rekstrargrundvöllur fyrir fyrirtækið Reykjavík Ritual á íslenskum markaði. Höfundur mun fjalla fræðilega um helstu hugtök sem tengjast viðfangsefninu. Einnig verður fjallað um tilgang viðskiptaáætlunar, markmið og innihald. Með PESTEL- og SWOT greiningu verður innra og ytra umhverfi fyrirtækisins greint, fjallað verður um markaðinn sem stefnt er á og helstu samkeppnisaðila þar. Gerð verður rekstraráætlun fyrir fyrirtækið Reykjavík Ritual, ítarleg fyrir fyrsta árið fram að opnun fyrirtækisins og síðan fyrir fyrstu þrjú árin til þess að sýna áætlaða þróun fyrirtækisins. Höfundur hafði alltaf ætlað út í rekstur fyrirtækis en hvernig fyrirtæki var hins vegar alltaf óákveðið. Hún var þó viss um að þegar tekin væru þau stóru skref að ætla út í eigin rekstur, þyrfti hún að hafa einlægan áhuga á þeirri hugmynd sem stæði til að framkvæma. Eftir mikla hugmyndavinnu var sú ákvörðun tekin að gera áætlun um möguleika og tækifæri Reykjavík Ritual.