Misnotkun örvandi lyfseðilsskyldra lyfja meðal framhaldsnema í íslenskum háskólum

Athyglisbrestur með/án ofvirkni (ADHD) er skilgreindur sem röskun á taugaþroska sem skiptist í þrjá flokka einkenna, einbeitingarerfiðleika, ofvirkni og hvatvísi, sem hamla einstaklingnum í námi, leik og/eða starfi. Eitt algengasta meðferðarúrræðið við einkennum ADHD eru örvandi lyf, svo sem metýlfe...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Hildur Hörn Orradóttir 1994-, Berglind Birna Pétursdóttir 1995-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2018
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/29533
Description
Summary:Athyglisbrestur með/án ofvirkni (ADHD) er skilgreindur sem röskun á taugaþroska sem skiptist í þrjá flokka einkenna, einbeitingarerfiðleika, ofvirkni og hvatvísi, sem hamla einstaklingnum í námi, leik og/eða starfi. Eitt algengasta meðferðarúrræðið við einkennum ADHD eru örvandi lyf, svo sem metýlfenídat og amfetamínskyld lyf. Á Íslandi er misnotkun örvandi lyfja nokkuð algeng. Misnotkun í þessu samhengi má skilgreina sem inntöku lyfja sem ekki eru ætluð þeim sem þau tekur, í öðrum tilgangi en efnið er gert til að þjóna og/eða í meira magni en samkvæmt læknisráði. Markmið þessarar rannsóknar var að kanna misnotkun örvandi lyfseðilsskyldra lyfja meðal framhaldsnema (N=102) í háskólum á Íslandi. Þátttakendur svöruðu rafrænum spurningalistum um einkenni ADHD, þunglyndis-, kvíða- og streitueinkenni og um örvandi lyfseðilsskyld lyf. Settar voru fram þrjár rannsóknarspurningar: 1) Hvert er algengi misnotkunar örvandi lyfseðilsskyldra lyfja meðal framhaldsnema í íslenskum háskólum? 2) Er munur á misnotkun örvandi lyfseðilsskyldra lyfja eftir kyni? 3) Er munur á misnotkun örvandi lyfseðilsskyldra lyfja eftir því hvort nemendur eru með einhvers konar greiningu og/eða fötlun? Kom í ljós að um 6,9% framhaldsnema í íslenskum háskólum nota örvandi lyfseðilsskyld lyf í öðrum tilgangi en læknisfræðilegum. Meginniðurstöður leiddu í ljós að karlar eru líklegri til að misnota örvandi lyfseðilsskyld lyf bæði til afþreyingar og til taugaeflingar (e. neuroenhancement). Sama átti við um þá sem greindu frá því að búa yfir einhvers konar fötlun eða ADHD greiningu. Þar sem misnotkun örvandi lyfseðilsskyldra lyfja fylgir nokkur áhætta er ljóst að fræðsla til nemenda um örvandi lyf er mikilvæg. Lykilorð: ADHD, Misnotkun, Háskólar á Íslandi