GPS landmælingar við Öræfajökul

Öræfajökull er stærsta eldfjall á Íslandi, jafnframt það hæsta. Öræfajökull er ekki mjög virkt eldfjall en hann hefur gosið tvisvar á sögulegum tíma, árin 1362 og 1727. Öræfajökull hefur sýnt litla sem enga virkni síðan hann gaus árið 1727. Hinsvegar hefur virknin aukist síðustu 2-3 ár, t.d. hafa or...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Maggý Lárentsínusdóttir 1993-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2018
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/29532
Description
Summary:Öræfajökull er stærsta eldfjall á Íslandi, jafnframt það hæsta. Öræfajökull er ekki mjög virkt eldfjall en hann hefur gosið tvisvar á sögulegum tíma, árin 1362 og 1727. Öræfajökull hefur sýnt litla sem enga virkni síðan hann gaus árið 1727. Hinsvegar hefur virknin aukist síðustu 2-3 ár, t.d. hafa orðið jarðskorpuhreyfingar, jarðskjálftar í kringum öskjuna hafa aukist og sigkatlar hafa myndast í öskjunni. Eftirlit var aukið með eldstöðinni í kjölfarið, m.a. var fjölgað jarðskjálftamælum á svæðinu og ár sem renna frá jöklinum eru vaktaðar. Einnig voru framkvæmdar GPS landmælingar umhverfis jökulinn í ágúst og október 2017. GPS-tæknin var hönnuð í kringum 1970 og tilgangur hennar er að finna nákvæma staðsetningu, hraða og tíma hvar sem er á jörðinni. Frá því að GPS landmælingar hófust fyrst á Íslandi árið 1986 hafa þær verið notaðar við að fylgjast með jarðskorpuhreyfingum á landinu. Jarðskorpuhreyfingar verða m.a. vegna kvikuhreyfinga í jarðskorpunni sem valda útþenslu eða hjöðnun eldfjallsins sem mælist sem landris eða landsig ásamt tilsvarandi láréttum hreyfingum. Tilgangur GPS landmælinga í ágúst og október 2017 var m.a. að kanna aflögun eldfjallsins í Öræfajökli. Gögn frá árunum 1993-2017 voru notuð og reiknaður voru færsluhraði miðað við fastan Evrasíufleka og leiðrétt fyrir fargbreytingum vegna bráðnunar jökla. Niðurstöður leiddu í ljós aukinn færsluhraða á síðustu 10-15 árum, t.d. var meðalfærsluhraði, miðað við fastan Evrasíufleka, áranna 1993-2006 2,3 ± 0,4 mm/ár og 2003-2017 hafði hann aukist í 3,8 ± 0,2 mm/ár, og breytingar í færslum GPS stöðva næst jöklinum sem hugsanlega gætu þýtt útþenslu eldfjallsins. Öræfajökull is the biggest volcano in Iceland, also the highest. The volcano is not very active but has erupted twice in the Holocene, 1362 and 1727. Since its last eruption in 1727 it has been dormant but in the last 2-3 years Öræfajökull has shown some signs of unrest e.g. increased seismicity, crustal deformation and ice cauldrons formed in the caldera. Monitoring of the volcano has been ...