Árstímabundin virkni léttra gróðurþaka á Íslandi

Gróðurþök hafa verið sett upp í vaxandi mæli víða í borgum í Evrópu sem hluti af grænbláum regnvatnslausnum. Markmið þessarar rannsóknar var að greina vatnafræðilega virkni mismunandi útfærslna af léttum gróðuþökum miðað við íslenskar aðstæður. Afrennsli var mælt af fjórum grænum þökum og einu saman...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Halla Einarsdóttir 1983-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2018
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/29501
Description
Summary:Gróðurþök hafa verið sett upp í vaxandi mæli víða í borgum í Evrópu sem hluti af grænbláum regnvatnslausnum. Markmið þessarar rannsóknar var að greina vatnafræðilega virkni mismunandi útfærslna af léttum gróðuþökum miðað við íslenskar aðstæður. Afrennsli var mælt af fjórum grænum þökum og einu samanburðarþaki með bárujárni yfir 8 mánuða skeið, frá maí til desember. Samhliða voru framkvæmdar mælingar á snjóþekju, rigningu og öðrum veðurþáttum. Meðalvatnsheldni þakanna mældist 47 til 61% miðað við bárujárn (maí til desember) í samræmi við erlendar rannsóknir í köldu loftslagi. Árstíðamunur á vatnsheldni mældist aðeins meiri í þessari rannsókn í samanburði við sambærilega skoska rannsókn, og sér í lagi var virknin lægri á veturna á Íslandi. Marktæk seinkun á massamiðju afrennslis og lækkun afrennslistoppa mældist í öllum gróðurþökunum en varlegt er að treysta á að gróðurþök minnki álag á frárennslikerfin þegar álagið er mest, þ.e.a.s. þegar úrkomuatburðir eru mjög stórir og tíðir. Marktæk vensl milli vatnsheldni fundust með línulegri aðfallsgreiningu við fjóra veðurþætti (lofthitastig, uppsafnaða úrkomu, úrkomu 14 daga fyrir atburð og vindhraða 7 daga fyrir atburð). Bæði grasþökin gáfu til kynna aðeins hærri vatnsheldni en úthaginn á móti báru þau vott um þurrk, litu illa út sér í lagi fyrri hluta sumars. Þak með einu lagi af 3 cm þykku grastorfi á hvolfi er ekki nægilegt til þola nokkurra vikna þurrkatímabil í Reykjavík. Þök með úthaga gáfu til kynna góða vatnafræðilega virkni, litu vel út, og þurftu lítið viðhald. Green roofs are being installed in cities in Europe recently as a part of green-blue stormwater system. The goal of this research was to assess hydrological efficiency of different types of extensive green roofs in Icelandic conditions. Runoff was measured from four green roofs and compared to one traditional corrugated iron roof over 8 month period, from May to December. At the same time measurements were made on weather, such as rain, snow and other weather conditions. Average water retention was 47 ...