La literatura de violencia en Colombia: Representación de la violencia social colombiana en

Þessi rannsókn, sem unnin er til fullnustu B.A. prófs í spænsku frá Háskóla Íslands, hverfist um greiningu á framsetningarmáta ofbeldis í Kólumbískum bókmenntum á tuttugustu öld. Meginviðfangsefnið snýr að greiningu tveggja skáldsagna Nóbelsverðlaunahafans Gabriel García Márquez,...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Katherine Borrero Arcieri 1986-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Spanish
Published: 2018
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/29472
Description
Summary:Þessi rannsókn, sem unnin er til fullnustu B.A. prófs í spænsku frá Háskóla Íslands, hverfist um greiningu á framsetningarmáta ofbeldis í Kólumbískum bókmenntum á tuttugustu öld. Meginviðfangsefnið snýr að greiningu tveggja skáldsagna Nóbelsverðlaunahafans Gabriel García Márquez, þ.e. Frásögn um margboðað morð (Crónica de una muerte anunciada, 1981)1 og Slæmir tímar (La mala hora, 1962). Þótt fyrra verkið hafi komið út á sjöunda áratug síðustu aldar og hið síðar tuttugu árum síðar mótast bæði af því að vera skrifuð á tímum mikilla umbrota og átaka í kólumbísku samfélagi, tímabili sem gjarnan hefur verið kallað ofbeldistíminn, eða “la época de la violencia”. Með það í huga að auðvelda skilning á sögulegum bakgrunni skáldverkanna, hefst rannsóknin á því að kynna aðstæður og ástand í Kólumbíu, þar sem sérstökum sjónum er beint að síðari hluta tuttugustu aldar. Því næst er stuttlega gerð grein fyrir sögu kólumbískra bókmennta – frá lokum nítjándu aldar og fyrri hluta tuttugustu aldar – með það í huga að gefa lesendum innsýn í bakgrunn verka Gabríels Márqezar og varpa þannig ljósi á sérstakt framlag hans á ritvelli heimalandsins. Í framhaldi þess er svo ráðist í greiningu helstu efnistaka skáldverkanna þar sem sérstök áhersla er lögð á þau atriði er lúta að valdamisræmi, misbeitingu valds, átökum og ofbeldi. Síðasti kafli rannsóknarinnar hverfist svo um samanburð á framsetningarmála ofbeldis í skáldverkunum sem greind eru, þau sett í samfélagslegt samhengi, og niðurstöður kynntar. Este estudio, llevado a cabo con el fin de completar el título de B.A. en Español de la Universidad de Islandia, tiene como objetivo principal el análisis de la representación de la violencia en la literatura colombiana durante la segunda mitad del siglo XX. Para cumplir tal propósito se analizan en particular dos obras del escritor, premio Nobel de Literatura en 1982, Gabriel García Márquez. Las novelas estudiadas son Crónica de una ...