Að lifa með reisn - Að deyja með reisn: Viðhorf nemenda við Háskóla Íslands til dánar- og sjálfsvígsaðstoðar

Markmið eftirfarandi rannsóknarritgerðar er að kanna viðhorf nemenda við Háskóla Íslands til dánar- og sjálfsvígsaðstoðar og auka þekkingu á málefninu. Notast er við megindlega rannsóknaraðferð. Könnun var send rafrænt á nemendur í grunn- og diplómanámi. Leitað er svara við rannsóknarspurningunum: H...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Súsanna Reinholdt Sæbergsdóttir 1976-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2017
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/29287
Description
Summary:Markmið eftirfarandi rannsóknarritgerðar er að kanna viðhorf nemenda við Háskóla Íslands til dánar- og sjálfsvígsaðstoðar og auka þekkingu á málefninu. Notast er við megindlega rannsóknaraðferð. Könnun var send rafrænt á nemendur í grunn- og diplómanámi. Leitað er svara við rannsóknarspurningunum: Hvert er viðhorf nemenda við Háskóla Íslands til dánar- og sjálfsvígsaðstoðar? Hefur lögleiðing dánar- og/eða sjálfsvígsaðstoðar áhrif á traust einstaklinga til heilbrigðiskerfisins? Hafa trúarbrögð áhrif á viðhorf einstaklinga til dánar- og sjálfsvígsaðstoðar? Lagt var upp með þær tilgátur að viðhorf nemenda væri almennt jákvætt gagnvart dánar- og sjálfsvígsaðstoð sem og lögleiðingu. Trúarbrögð geta haft áhrif á viðhorf einstaklinga og að lögleiðing dánar- og sjálfsvígsaðstoðar hafi jákvæð áhrif á traust til heilbrigðiskerfisins. Meginniðurstöður rannsóknarinnar eru að viðhorf nemenda við Háskóla Íslands er almennt jákvætt gagnvart dánaraðstoð, þeir telja hana vera siðferðilega réttmæta og eru yfirleitt sammála lögleiðingu slíkrar aðstoðar hér á landi. Hvað sjálfsvígsaðstoð varðar eru þátttakendur ekki eins jákvæðir. Þeir eru almennt sammála því að lögleiðing dánar- og sjálfsvígsaðstoðar hafi ekki áhrif á traust þeirra til heilbrigðiskerfisins. Einnig kemur fram að trúarskoðanir hafa ekki eins mikil áhrif á viðhorf til dánar- og sjálfsvígsaðstoðar eins og talið var í upphafi rannsóknar. Leitarorð: dánaraðstoð, líknardráp, sjálfsvígsaðstoð, líknarmeðferð, lög The purpose of the following thesis is to examine the attitudes of students at the University of Iceland towards euthanasia and physician assisted suicide and to increase knowledge of the subject matter. Quantitative research method was applied in this research. A survey was sent by email to students in undergraduate and certified diploma course studies. The answer to the following research questions was sought: What is the attitude of students at the University of Iceland towards euthanasia and physician assisted suicide? Does legalization of euthanasia and/or ...