Konukot. Næturathvarf fyrir heimilislausar konur

Markmið þessarar rannsóknar var að kanna viðhorf og reynslu félagsráðgjafa af neyðarúrræðinu Konukoti. Konukot er úrræði fyrir heimilislausar konur hér á landi og er starfrækt eftir skaðaminnkandi hugmyndafræði. Í rannsókninni var verið að leita svara við því hvaða konur nýta sér úrræðið, hver bakgr...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Lovísa María Emilsdóttir 1980-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2017
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/29237
Description
Summary:Markmið þessarar rannsóknar var að kanna viðhorf og reynslu félagsráðgjafa af neyðarúrræðinu Konukoti. Konukot er úrræði fyrir heimilislausar konur hér á landi og er starfrækt eftir skaðaminnkandi hugmyndafræði. Í rannsókninni var verið að leita svara við því hvaða konur nýta sér úrræðið, hver bakgrunnur þeirra er, hvað þær eiga sameiginlegt og hvort úrræðið nýtist vel konum sem eru með tvígreiningar. Þá var viðhorf félagsráðgjafa til úrræðisins jafnframt skoðað. Í rannsókninni var eigindleg aðferðafræði notuð þar sem viðtöl voru tekin við fjóra félagsráðsgjafa sem þjónusta skjólstæðinga sem nýta sér Konukot. Viðtal var einnig tekið við starfsmann Konukots, sem starfað hefur þar frá sína frá stofnun þess, og nýtti rannsakandi sér þær upplýsingar til að skrifa um sögu Konukots og hvernig hugmyndafræði skaðaminnkunar hefur verið útfærð og notuð þar. Rannsakanda þótti áhugavert að skoða bakgrunn kvenna sem nota þjónustu Konukots og hvað þær eiga sameiginlegt frá sjónarhorni félagsráðgjafa sem þjónusta þær. Jafnframt var athyglisvert að kynnast viðhorfum félagsráðgjafa til úrræðisins og hvort þeir telja það henti þessum hópi skjólstæðinga sinna. Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að konurnar sem nýta sér úrræðið Konukot hafi flestar átt erfiða æsku, hafi orðið fyrir áföllum í lífinu og margar þeirra eiga einnig við geðræn vandamál að stríða. Bakland kvennanna er lélegt og flestar þeirra neyta áfengis- og/eða vímuefna. Viðhorf félagsráðgjafanna til úrræðisins var almennt mjög gott og þeir voru jákvæðir og opnir fyrir hugmyndafræði skaðaminnkunar. Lykilorð: Félagsráðgjöf, heimilisleysi, Konukot, geðraskanir, vímuefnaneysla, skaðaminnkun. The aim of this study was to examine the attitude and experience of social workers to the homeless shelter Konukot. Konukot uses harm reduction ideology in its operation and is used as a homeless shelter for women in Iceland. In this study, the researcher was examining the type of women that stay at this homeless shelter, their background, commonalities and whether this type ...