Summary: | Markmið: Markmið þessarar rannsóknar var að kanna fæðuvenjur á unglingsárum og tengsl þeirra við ristil- og endaþarmskrabbamein. Aðferðir: Notast var við gögn úr Öldrunarrannsókn Hjartaverndar sem framkvæmd var í Reykjavík á tímabilinu 2002 -2006 en alls tóku 5764 einstaklingar (42% karlar) fæddir á tímabilinu 1907 -1935 þátt. Með samkeyrslu gagnanna við Krabbameinsskrá Íslands fengust upplýsingar um greiningu og dánartíðni vegna ristil- og endaþarmskrabbameins. Notast var við meginhlutagreiningu til að greina fæðumynstur. Notast var við lifunargreiningu til að meta hlutfallslega áhættu á ristil- og endaþarmskrabbameini með 95% öryggismörkum. Niðurstöður: Á eftirfylgnitímanum (meðaltal 8.2 ár) greindust 136 einstaklingar með ristil- og endaþarmskrabbamein, þar af voru 52 sem dóu af völdum meinsins. Borið saman við þátttakendur sem skoruðu lágt á sterkasta fæðumynstrinu, sem einkennist af mikilli neyslu á söltuðu og reyktu kjöti og fiski, blóðmör og lifrarpylsu, mjólk og mjólkurvörum ásamt hafragraut á unglingsárum sást aukin áhætta á ristil- og endaþarmskrabbameini hjá þátttakendum sem skoruðu meðalhátt (HR 1.63, 95% CI 1.04-2.57). Hinsvegar, sáust ekki marktæk tengsl fyrir þátttakendur sem skoruðu hátt (HR 1.48, 95% CI 0.93-2.37). Þegar gögnunum var lagskipt eftir kyni sást einungis tölfræðilega marktækt samband hjá konum (HR 2.06, 95% CI 1.11-3.84; p-trend =0.02) sem skoruðu hátt á þessu fæðumynstri, en ekki körlum. Ályktun: Niðurstöður gefa til að kynna að fylgni við fæðumynstur sem samanstendur af mikilli neyslu á söltuðu og reyktu kjöti og fisk á unglingsárunum geti aukið hættu á ristil- og endaþarmskrabbameini meðal kvenna. Kynjamunurinn gæti verið tilkominn vegna hás aldurs þátttakenda við komu í Öldrunarrannsóknina. Aims: To examine whether dietary patterns in adolescence are associated with colorectal cancer (CRC). Methods: We used food frequency data obtained from the AGES Reykjavik study, conducted in Reykjavik, Iceland in the period 2002 -2006 and included 5078 (42% male) participants born between ...
|