Ferðaþjónustan á jaðarsvæðinu Seyðisfirði. Upplifun heimamanna á áhrifum ferðaþjónustunnar á samfélagið.

Undanfarin ár hefur orðið breyting á ferðaháttum ferðamanna. Stöðugt fleiri ferðamenn sækja í að heimsækja jaðarsvæði sem eru skilgreind á marga vegu en huglægt mat einstaklings og landfræðileg staðsetning eru þær skilgreiningar sem oftast er talað um. Ferðaþjónusta á jaðarsvæðum getur verið mikilvæ...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Vilhjálmur Sveinn Magnússon 1990-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2017
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/29123
Description
Summary:Undanfarin ár hefur orðið breyting á ferðaháttum ferðamanna. Stöðugt fleiri ferðamenn sækja í að heimsækja jaðarsvæði sem eru skilgreind á marga vegu en huglægt mat einstaklings og landfræðileg staðsetning eru þær skilgreiningar sem oftast er talað um. Ferðaþjónusta á jaðarsvæðum getur verið mikilvæg og virkar oft sem björg fyrir svæði sem hafa lagt sinn helsta atvinnuveg niður. Seyðisfjörður telst sem jaðarsvæði vegna landfræðilegrar staðsetningar, samgangna, árstíðabundinnar ferðaþjónustu og veðurfars. Ferðaþjónustan hefur einnig mikil áhrif á heimamenn sem mikilvægt er að hvetja til þátttöku og séu jákvæðir í garð hennar því þeir eru yfirleitt undirstaða þess að ferðaþjónusta þrífst á svæðinu. Meginmarkmið með rannsókninni er að kanna mikilvægi ferðaþjónustunnar fyrir jaðarsvæðið Seyðisfjörð ásamt því að kanna hver sé upplifun heimamanna á áhrifum ferðaþjónustunnar á samfélagið. Í rannsókninni voru tekin sex viðtöl við heimamenn Seyðisfjarðar sem þekktu til ferðaþjónustunnar og samfélagsins á svæðinu. Niðurstaða rannsóknarinnar gaf til kynna að ferðaþjónustan er mikilvæg fyrir samfélagið. Hún skapar mikla atvinnu, tækifæri, aukna þjónustu og líflegt umhverfi fyrir heimamenn. Heimamenn eru að mestu jákvæðir í garð hennar og bjóða ferðamenn velkomna. Með auknum straumi ferðamanna í bæinn á undanförnum árum má þó sjá að hluti heimamanna er orðinn pirraður út í ferðamenn þar sem þeir fara inn á einkarými heimamanna, valda álagi á þjónustu og skilja eftir sig úrgang á óæskilegum stöðum. In the recent years there has been a change in tourism demands of destinations. Increasingly more tourists look to visit peripheral areas wich are defined in many ways but the subjective opinion and geographical location are the definitions most commonly spoken of. Tourism in peripheral areas can be important and has worked as a way out of unemplyment for the peripheral areas when other industry in the area has stopped. Seyðisfjörður is defined as peripheral area due to its geographical location, transportation, seasonal tourism ...