Markaðssetning Krispy Kreme á Íslandi : markaðsáætlun fyrir Krispy Kreme

Markmið ritgerðarinnar var að búa til og móta markaðsáætlun fyrir Krispy Kreme á Íslandi. Tilgangur ritgerðarinnar var tvenns konar. Annars vegar var hann sá að aðstoða Krispy Kreme við að kynna fyrirtækið þar sem hlutfall þeirra sem þekkja vörumerkið á Íslandi er í kringum 50% og hins vegar að aðst...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Gunnar Örn Helgason 1979-
Other Authors: Háskólinn á Bifröst
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2017
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/29121
Description
Summary:Markmið ritgerðarinnar var að búa til og móta markaðsáætlun fyrir Krispy Kreme á Íslandi. Tilgangur ritgerðarinnar var tvenns konar. Annars vegar var hann sá að aðstoða Krispy Kreme við að kynna fyrirtækið þar sem hlutfall þeirra sem þekkja vörumerkið á Íslandi er í kringum 50% og hins vegar að aðstoða Krispy Kreme við að stækka markhóp sinn og sækja á nýja markaði. Áætlunin listar upp markmið, aðgerðir og hugmyndir sem Krispy Kreme getur innleitt svo að markmiðin náist. Í upphafi áætlunarinnar verður farið í sögu Krispy Kreme, hér á Íslandi og erlendis. Þar á eftir er farið í aðferðafræði markaðsáætlunarinnar og hún útskýrð. Því næst er farið yfir helstu líkön sem notuð eru en þau hafa þann tilgang að hjálpa til við að skilja og greina markaðinn og neytendur og hvað þarf til svo árangur náist. Helstu líkönin eru SVÓT, PESTLE, Ansoff og Fimm krafta líkan Porters. Líkön þessi reyndust góð til þess að greina markaðinn sem Krispy Kreme er á og samkeppnisumhverfi þeirra. Út frá greiningunni var markhópur skilgreindur og staðfærsla vörumerkisins. Í síðari hluta áætlunarinnar er farið í atriði eins og markaðsstefnu og markmið fyrir 1 ár sem og SMART. Aðgerðaráætlun er tekin vel fyrir og allt sem viðkemur henni og að endingu er fjallað um mælanleika og eftirfylgni. Aðalmarkmið þessarar markaðsáætlunar er að búa til tryggt og traust samband milli Krispy Kreme og neytenda með það að leiðarljósi að tryggja ánægju neytenda/viðskiptavina til langtíma arðsemi. Það hefst með réttum skilaboðum, á réttum stöðum sem unnin eru í takt við markmið áætlunarinnar, með gæði og glaðværð að leiðarljósi. The objective of the essay was to create and shape a Marketing Plan for Krispy Kreme in Iceland. The goal of the essay was twofold. First to assist Krispy Kreme in introducing the company where the share of those who know the brand in Iceland is 50%. Secondly, to assist Krispy Kreme to grow their target group and enter new markets. The marketing plan outlists objectives, actions and idease for Krispy Kreme to implement in order to ...