Tengsl súrefnisupptöku á hlaupabretti og í djúpvatnshlaupi : hvernig er mæling á súrefnisupptöku í vatni gerð?

Mælingar á hámarkssúrefnisupptöku í djúpvatnshlaupi höfðu hingað til ekki verið gerðar við Háskólan í Reykjavík. Tilgangur verkefnisins er að útskýra hvernig slík mæling er gerð, ásamt því að gera tilraunamælingu þar sem borið er saman hámarkssúrefnisupptöku í vatni og á landi. Spurningum er svarað...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Eyþór Ernir Oddsson 1991-
Other Authors: Háskólinn í Reykjavík
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2017
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/28858
Description
Summary:Mælingar á hámarkssúrefnisupptöku í djúpvatnshlaupi höfðu hingað til ekki verið gerðar við Háskólan í Reykjavík. Tilgangur verkefnisins er að útskýra hvernig slík mæling er gerð, ásamt því að gera tilraunamælingu þar sem borið er saman hámarkssúrefnisupptöku í vatni og á landi. Spurningum er svarað varðandi framkvæmd verkefnisins, hvernig tæki er pakkað niður, hvernig það er sett upp, hvernig tryggir þú öryggi rafmagnstækja í nálægð við vatn og svo framvegis. Þegar tækið var sett upp til tilraunar komu stundum upp villumeldingar í tækinu, en sér kafli er til staðar þar sem þeim er lýst og hvaða lausnir það eru sem fundust við þeim. Niðurstöður verkefnisins eru þær að mæling á hámarkssúrefnisupptöku með tækjabúnaði Háskólans er möguleg, en ekki fengust sömu niðurstöður í vatni og á landi. Þó eru þættir til staðar sem benda til þess að hægt sé að fá svipaðar niðurstöður, hvort sem mælt er á landi eða í vatni.