Summary: | Rannsókn þessi miðar að því að skoða nánar efnahagslega áhrifaþætti sem þegar hafa verið skilgreindir í tengslum við Norðurskautsmál og íslenskan efnahag. Tilgangurinn er að þróa leiðir til að móta ákvörðunarlíkan sem varpa mun ljósi á hvernig vaxandi umsvif á Norðurskautinu munu hafa áhrif á efnahagslíf Íslands. Verkefni þetta er liður í stærri rannsókn á vegum CORDA (Centre of Risk and Decision Analysis) sem er undir Tækni og verkfræðideild Háskólans í Reykjavík. Rannsóknarverkefnið nefnist; “A decision model for strategic planning in the Arctic region” (DMA). Fyrri verkefni undir DMA hafa skilgreint efnahagslegar breytur og áhrifaþætti með viðtölum við sérfræðinga á sviði Norðurskautsmála og með internet könnunum. Þessar breytur mynda flókið kerfi krossáhrifa sem nauðsynlegt er að skoða nánar. Byggt er á fyrri rannsóknum og þær notaðar sem grunnur til að framkvæma Delphi könnun og skoða kross áhrif milli breyta sem þegar hafa verið skilgreindar. Átta breytur voru valdar í þessum tilgangi. Sóst var eftir áliti sérfræðinga og þátttöku þeirra í internet könnun. Sérfræðingar voru beðnir um að meta kross áhrif milli breyta á 7 punkta skala með gildi á bilinu +3 til -3. Hæsta gildið stendur fyrir mjög jákvæð áhrif og lægsta gildið fyrir mjög neikvæð áhrif. Könnunin var framkvæmd í tveimur umferðum, eins og Delphi aðferðin segir til um, til að stuðla að auknu sammæli meðal þátttakanda um kross áhrifin. Niðurstöður benda til að sérfræðingar hafi ólíkar skoðanir um breytur og áhrif þeirra á milli, þó að nokkuð sammæli hafi náðst í seinni umferð könnunarinnar. Í sumum tilfellum voru sérfræðingar mjög sammála en í öðrum tilfellum birtist allur skalinn af skoðunum í svörum þeirra. Ólíkar skoðanir og svör benda til að aukin óvissa fylgi þeim breytum og breytupörum sem það á við um. Á niðurstöðum má einnig sjá hversu krefjandi og þreytandi Delphi og krossáhrifa kannanir geta verið fyrir álitsgjafa. Hins vegar eru þær nauðsynlegar til að öðlast skilning í málefnum þar sem aðrar leiðir til upplýsingasöfnunar liggja ekki ...
|