Iceland : transition to clean energy, limitations of the electric transmission system

Tilgangur verkefnisins er að reyna að kortleggja hvaða áhrif orkuskipti í samgöngum og iðnaði munu hafa á flutningskerfi raforku í framtíðinni. Skilgreindar voru tvær sviðsmyndir þar sem mismunandi stig orkuskipta var skilgreint og orkuþörfin metin fyrir hvora sviðsmynd. Út frá orkuþörfinni var áætl...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Gnýr Guðmundsson 1971-
Other Authors: Háskólinn í Reykjavík
Format: Thesis
Language:English
Published: 2017
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/28771
Description
Summary:Tilgangur verkefnisins er að reyna að kortleggja hvaða áhrif orkuskipti í samgöngum og iðnaði munu hafa á flutningskerfi raforku í framtíðinni. Skilgreindar voru tvær sviðsmyndir þar sem mismunandi stig orkuskipta var skilgreint og orkuþörfin metin fyrir hvora sviðsmynd. Út frá orkuþörfinni var áætlað það hámarks afl sem myndi leggjast á kerfið. Einnig voru skilgreindir virkjanakostir sem þyrfti að nýta í þeim tilgangi að útvega orku fyrir þau orkuskipti sem skilgreind voru. Í því augnamiði að ná fram mismunandi eiginleikum virkjana sem flutningskerfið þarf að bregðast við voru skilgreindar tvær mögulegar samsetningar af virkjanakostum fyrir hvora sviðsmynd. Er þar átt við annars vegar hefðbundnar jarðvarma og vatnsvirkjanir og hins vegar vatnsvirkjanir og vindorkuver. Til að meta áhrif á flutningskerfi raforku voru þessar sviðsmyndir og mismunandi virkjanakostir settir upp í hermilíkanið PSS/E. Í líkaninu var einnig stillt upp þeim styrkingum á meginflutningskerfinu, sem lýst er í kerfisáætlun Landsnets. Til einföldunar var einungis stillt upp þeim valkosti sem kallaður er A.1 og byggir á svokallaðri T-tengingu. Kerfið var svo hermt fyrir allar sviðsmyndir og alla mögulega virkjunarkosti. Við hermanirnar voru fimm mismunandi rekstraraðstæður kerfisins til athugunar og voru allar hermanir framkvæmdar bæði með og án hálendislínuna sem hluta af kerfinu. Niðurstöður hermana sýndu að ef erfitt gæti orðið að reka kerfið við ýmis rekstrarskilyrði án hálendislínunnar í framtíðinni. Það fer þó eftir því á hvaða stig orkuskiptin eru komin og eins hvernig önnur raforkunotkun mun þróast á tímabilinu. Einnig hefur staðsetning virkjanakosta sem nýttir eru áhrif. Aðrir veikleikar í kerfinu voru einnig uppgötvaðir og má þar helst nefna innfæðingu inn á Austfirði, en með vaxandi rafvæðingu fiskimjölsverkssmiðja á Austurlandi má reikna með að afhendingaröryggi á Austfjörðum fari minnkandi ef ekkert er að gert. The purpose of this project is to study what effect transitioning transport and industry to clean energy will have on ...