Mikilvægi tengslaneta í ferðaþjónustu: Blái demanturinn - samstarfsverkefni ferðaþjónustuaðila á Reykjanesi

Markmið þessarar rannsóknar var að skoða mikilvægi tengslaneta og þýðingu þeirra fyrir ferðaþjónustufyrirtæki. Tekið er fyrir samstarfsverkefnið Bláa demantinn eða „Blue Diamond“ sem byggist á þeirri hugmyndafræði að í raun sé Reykjanesið einn áfangastaður sem hafi uppá margt að bjóða í stað þess að...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Iðunn Ýr Ásgeirsdóttir 1984-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2009
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/2872
Description
Summary:Markmið þessarar rannsóknar var að skoða mikilvægi tengslaneta og þýðingu þeirra fyrir ferðaþjónustufyrirtæki. Tekið er fyrir samstarfsverkefnið Bláa demantinn eða „Blue Diamond“ sem byggist á þeirri hugmyndafræði að í raun sé Reykjanesið einn áfangastaður sem hafi uppá margt að bjóða í stað þess að vera margir smærri staðir. Til þess að fá innsýn í verkefnið var tekið viðtal við forsvarsmann Bláa demantsins, um forsögu og aðdraganda hugmyndarinnar, markmiðin að baki verkefninu og þýðingu þess. Til að fá fram hitt sjónarhornið, þ.e. hvaða þýðingu Blái demanturinn hefur fyrir þau ferða¬þjónustufyriræki sem að honum koma, þá voru tekin þrjú viðtöl, við aðstandendur Bláa lónsins, Fræðasetursins í Sandgerði og Saltfisksetursins í Grindavík. Rannsóknaraðferðin sem notuð var í þessari rannsókn nefnist eigindleg rannsóknaraðferð (social research). Aðalmarkmið eigindlegra rannsóknaraðferða er að rannsaka og varpa ljósi á hvernig mannfólkið upplifir félagslegan raunveruleika (Esterberg, 2000). Tekin voru fjögur viðtöl og flokkast þau sem djúpviðtöl (in-depth interviews). Markmiðið með þeim var að kanna viðfangsefnið með opnum hug og leyfa viðmælendunum að tjá sínar skoðanir með sínum eigin orðum. Tilgangur opinna viðtala er því að lýsa flóknari mynd af lífi fólks og fá dýpri skilning á því hvaða merkingu fólk leggur í líf sitt. (Esterberg, 2000). Taldi rannsakandi heppilegast að nota þess konar rannsóknaraðferð við gagnaöflun til þess að hægt væri að fá góðar og ítarlegar upplýsingar. Þessi rannsóknaraðferð hentar vel í ljósi stuttrar sögu verkefnisins en sökum þess eru fyrirliggjandi ritaðar heimildir afar litlar. Að auki þá hentar rannsóknaraðferðin vel viðfangsefninu þar sem virkni og mikilvægi tengslaneta snúast miklu leyti um upplifun viðkomandi aðila. Hugleiðingar fræðimanna, um mikilvægi tengslaneta og hvaða þýðingu þau hafa fyrir ferðaþjónustuaðila verða skoðaðar til að varpa ljósi á niðurstöður rannsóknarinnar. Viðmælendur mínir voru allir sammála um það að samstarfsverkefni áþekk Bláa demantinum væru til góðs ...