Prevalence and interventions of sleep problems in children with intellectual and/or developmental disorders or other disabilities in Iceland

Svefn er nauðsynlegur þáttur til að viðhalda góðri heilsu (Dahl, 1996; Dewald, Meijer, Oort, Kerkhof og Bögels 2010). Talið er að um 30% barna á aldrinum 0-5 ára eigi við svefnvanda að stríða (Richdale, 1999). Auk þess er talið að allt að 80% barna með sérþarfir glími við svefnvanda (Richdale og Sch...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Hulda Jónsdóttir Tölgyes 1986-
Other Authors: Háskólinn í Reykjavík
Format: Thesis
Language:English
Published: 2017
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/28708
Description
Summary:Svefn er nauðsynlegur þáttur til að viðhalda góðri heilsu (Dahl, 1996; Dewald, Meijer, Oort, Kerkhof og Bögels 2010). Talið er að um 30% barna á aldrinum 0-5 ára eigi við svefnvanda að stríða (Richdale, 1999). Auk þess er talið að allt að 80% barna með sérþarfir glími við svefnvanda (Richdale og Schreck, 2009; Richdale, 1999). Markmið rannsóknarinnar var að afla gagna um tíðni svefnvanda barna með sérþarfir á Íslandi, sem og kanna hvaða úrræði eru algeng og standa foreldrum til boða vegna svefnvanda barna þeirra. Spurningalisti var sendur til foreldra barna með sérþarfir á Íslandi árin 2016 og 2017 sem innihélt bakgrunnsspurningar auk matslista er varðar svefnvanda: Children’s Sleep Habits Questionnaire (CSHQ). Niðurstöður sýndu að meirihluti foreldra töldu barn sitt hafa glímt við svefnvanda og að sá svefnvandi væri enn til staðar. Alls fylltu 155 foreldrar út CSHQ listann og reyndust börn þeirra allra yfir viðmiðum fyrir hugsanlegan svefnvanda. Niðurstöður rannsóknarinnar er varða tíðni svefnvanda voru því í samræmi við erlendar rannsóknir þar sem stór hluti barna með sérþarfir á við svefnvanda að stríða. Algengasta fagaðstoðin sem foreldrar höfðu sótt vegna svefnvanda barns var læknisaðstoð og var meirihluta foreldra ráðlagt að nota meðferð í formi lyfjagjafar. Skortur er á íslenskum rannsóknum um svefnvanda barna með sérþarfir og þessi rannsókn veitir upplýsingar um stöðu mála á því sviði. Mikilvægt er að rannsaka frekar gagnsemi lyfja við svefnvanda barna. Lykilorð: Svefn barna, svefnvandi, svefn, sérþarfir. Sleep is a necessary component for maintaining good health (Dahl, 1996; Dewald, Meijer, Oort, Kerkhof & Bögels 2010). Around 30% of children at the age of 0-5 years are thought to have problems with sleep (Richdale, 1999). Additionally, up to 80% of children with special needs have sleep problems (Richdale & Schreck, 2009; Richdale, 1999). The purpose of this study was to examine statistical information of sleep problems in children with special needs in Iceland. In addition, the purpose was ...