Occupational stress among caregivers in the geriatric care field in Iceland : relations with sickness absenteeism, anxiety, and depression symptoms

Markmið þessarar rannsóknar var að skoða samband milli vinnustreitu, sálfélagslegra þátta í vinnu, fjarvista vegna veikinda, kvíða- og þunglyndiseinkenna hjá starfsmönnum í öldrunarþjónustu á Íslandi. Þátttakendur voru 281 starfsmaður á fimm hjúkrunarheimilum. Niðurstöður sýndu marktækt samband mill...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Valdís Jónsdóttir 1993-
Other Authors: Háskólinn í Reykjavík
Format: Thesis
Language:English
Published: 2017
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/28645
Description
Summary:Markmið þessarar rannsóknar var að skoða samband milli vinnustreitu, sálfélagslegra þátta í vinnu, fjarvista vegna veikinda, kvíða- og þunglyndiseinkenna hjá starfsmönnum í öldrunarþjónustu á Íslandi. Þátttakendur voru 281 starfsmaður á fimm hjúkrunarheimilum. Niðurstöður sýndu marktækt samband milli vinnustreitu og kvíða við lengd veikinda. Vinnustreita, kvíði, þunglyndi og sálfélagslegir þættir voru með marktækt samband við tíðni veikinda starfsmanna. Framkvæmd voru fimm leiðargreiningarlíkön. Tvö líkön voru marktæk, það fyrra hafði fjórar frumbreytur sem höfðu bein eða óbein áhrif á tíðni veikinda meðal þátttakenda í gegnum kvíða. Seinna marktæka líkanið hafði einnig fjórar frumbreytur með bein eða óbein áhrif á þunglyndi í gegnum kvíða þátttakenda. Vinnustreita hafði sterkustu áhrifin í báðum líkönunum. Niðurstöður rannsóknarinnar sýndu einnig að ómenntaðir starfsmenn skáru sig frá öðrum starfsmönnum, þeir greindu frá meiri vinnustreitu, þunglyndi, kvíða og sálfélagslegum þáttum í vinnunni en aðrir starfsmenn. En niðurstöður á fjarveru starfsmanna vegna veikinda sýndu að félagsliðar tóku bæði lengri og tíðari veikindaleyfi en starfsmenn í öðrum stöðum. This study examined the relations between occupational stress, psychosocial factors at work, sickness absenteeism, and anxiety and depression symptoms in the geriatric care field in Iceland. Participants were 281 employees working at five nursing homes. The results revealed a significant correlation between occupational stress and anxiety on the duration of sickness absenteeism. Additionally, occupational stress, anxiety, depression, and psychosocial factors at work were significantly correlated with the frequency of sickness absenteeism. Five path analysis models were conducted, in which two were found to be statistically significant. The first significant model had four predictor variables directly and indirectly affecting the frequency of sickness absenteeism among the participants mediated through anxiety. The second significant model had also four ...