Próffræðilegir eiginleikar íslenskrar útgáfu Child Routines Questionnaire

Tilgangur rannsóknarinnar var að athuga próffræðilega eiginleika íslenskrar þýðingar á bandaríska listanum Child Routines Questionnaire (CRQ), sem mælir daglegar rútínur hjá börnum. Einnig var athugað hvort ýmsar lýðfræðilegar breytur hefðu áhrif á rútínur barna. Þátttakendur í rannsókninni voru 634...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Birna Kristrún Halldórsdóttir 1980-, Huld Óskarsdóttir 1975-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2009
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/2857
Description
Summary:Tilgangur rannsóknarinnar var að athuga próffræðilega eiginleika íslenskrar þýðingar á bandaríska listanum Child Routines Questionnaire (CRQ), sem mælir daglegar rútínur hjá börnum. Einnig var athugað hvort ýmsar lýðfræðilegar breytur hefðu áhrif á rútínur barna. Þátttakendur í rannsókninni voru 634 foreldrar barna á aldrinum 6-13 ára. Börnin komu úr 5 grunnskólum víðsvegar að af landinu. Niðurstöður þáttagreiningar á CRQ-IS listanum sýndu fjóra þætti sem var sami fjöldi þátta og á CRQ í Bandaríkjunum. Íslensku þættirnir voru Heimilisskyldur, Samvera fjölskyldu, Daglegt líf og Agarútínur. Einn af bandarísku þáttunum, Heimanám, dreifðist á aðra þætti í íslensku útgáfunni og einn nýr þáttur, Samvera fjölskyldu, varð til í CRQ-IS. Það styður hugsmíðaréttmæti CRQ að listinn hefur jákvæða fylgni við tíðnikvarða Family Routine Inventory (FRI) og neikvæða fylgni við hegðunarvandamál barna, mæld með styrkleikakvarða Eyberg Child Behavior Inventory (ECBI). Innri áreiðanleiki CRQ-IS er góður og próffræðilegir eiginleikar sambærilegir bandarísku útgáfunni. CRQ-IS lofar góðu sem nýtt mælitæki á Íslandi til að mæla rútínur barna.