„Dagurinn líður ótrúlega hratt og ég er alltaf komin strax heim“ : starfendarannsókn á notkun kennsluaðferðarinnar "sérfræðingskápan" þar sem nám nemenda fer fram í hlutverki

Menntun er afar þýðingarmikil einstaklingum og samfélaginu í heild. Mikilvægt er því að nemendur upplifi menntun áhugaverða og skemmtilega. Rannsóknir benda til að svo sé ekki endilega raunin í grunnskólum landsins þar sem námsáhugi nemenda mælist lítill og brottfall nemenda úr framhaldsskóla mikið....

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Hákon Sæberg Björnsson 1990-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2017
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/28511
Description
Summary:Menntun er afar þýðingarmikil einstaklingum og samfélaginu í heild. Mikilvægt er því að nemendur upplifi menntun áhugaverða og skemmtilega. Rannsóknir benda til að svo sé ekki endilega raunin í grunnskólum landsins þar sem námsáhugi nemenda mælist lítill og brottfall nemenda úr framhaldsskóla mikið. Leita ætti allra leiða til að gera nám áhugavert og skemmtilegt til að stemma stigu við þessum vanda. Verkefni þetta er starfendarannsókn. Tilgangurinn með framkvæmd hennar var að skoða hvernig til tækist að nota kennsluaðferðina sérfræðingskápuna í skólastarfi og kanna áhrif hennar á nám nemenda og starfshætti kennara. Sérfræðingskápan er ein af kennsluaðferðum leiklistar og gengur hún út á að nám nemenda fari fram í hlutverki í ímynduðum heimi. Notkun sérfræðingskápunnar í kennslu hefur ekki verið rannsökuð hér á landi en erlendar rannsóknir sýna að hún er vel til þess fallin að auka áhuga og ánægju nemenda af námi. Niðurstöður rannsóknarinnar gefa til kynna að sérfræðingskápan hafi jákvæð áhrif á nám nemenda og starf kennara. Niðurstöðurnar benda til að notkun sérfræðingskápunnar skapi kennurum grundvöll fyrir aukinni samþættingu náms og öflugri teymiskennslu, stuðli að markvissri ígrundun þeirra á eigin starfi og efli trú þeirra á eigin getu. Skipulagning náms með notkun sérfræðingskápunnar gefur nemendum tækifæri til að læra í gegnum leik sem er náttúruleg leið barna til náms og þroska. Í niðurstöðunum má greina að nemendur sem læra í hlutverki í ímynduðum heimi upplifa skemmtun í námi, fá fjölmörg tækifæri til að komast í flæði, trú þeirra á eigin getu eykst sem og samvinnunám þeirra á milli. Niðurstöðurnar gefa tilefni til frekari rannsókna á notkun sérfræðingskápunnar í íslensku skólastarfi. Jafnframt ættu þær að vera kennurum hvatning að reyna aðferðina í kennslu. Education is of great significance for individuals and society as a whole. Therefore, it is important that students have a motivating and fun experience of education. This does not seem to be the case in Iceland since studies show a low student ...