Hagkvæmni rafbílaframleiðslu á Íslandi

Rafbílar eru komnir til að vera. Rafbílavæðingin í heiminum eykst með degi hverjum, stöðugar uppgötvanir og öflug þróunarvinna afkastar betri og gæðameiri rafbílum. Tilgangur þessa verkefnis var að kanna hvort það gæti verið hagkvæmt að stofna rafbílaverksmiðju hérlendis. Reynt var að leggja mat á h...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Vilhjálmur Ingi Halldórsson 1982-
Other Authors: Háskólinn á Bifröst
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2009
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/2849
Description
Summary:Rafbílar eru komnir til að vera. Rafbílavæðingin í heiminum eykst með degi hverjum, stöðugar uppgötvanir og öflug þróunarvinna afkastar betri og gæðameiri rafbílum. Tilgangur þessa verkefnis var að kanna hvort það gæti verið hagkvæmt að stofna rafbílaverksmiðju hérlendis. Reynt var að leggja mat á hugsanlega kostnað við stofnun verksmiðjunnar sem og kostnaðartölur á hvern framleiddan bíl. Upplýsingum og gögnum var safnað úr tímaritum, úr blaðagreinum, af veraldarvefnum og úr bókum. Fljótt kom í ljós að erfitt var að finna haldbærar upplýsingar sem gátu gefið skýra og glögga mynd af því hvernig kostnaðarskiptingin gæti átt sér stað. Hins vegar fannst við leit á veraldarvefnum skýrsla sem gerð var fyrir samgönguráðuneytið í USA árið 1999. Í þeirri skýrslu var á greinargóðan hátt skýrt frá helstu kostnaðarliðum framleiðslunnar. Niðurstaðan var að notast við þessa skýrslu sem og eitt ákveðið viðmið. Viðmiðið var annar rafbílaframleiðandi staðsettur í Noregi sem nefnist Think. Út frá þessum tveimur liðum voru helstu kostnaðarútreikningar gerðir. Einnig voru kynntir helstu þættir verksmiðjunnar eins og skipulag, staðsetning, innkaup og margt fleira. Farið var í sögu rafbíla hérlendis og erlendis. Að auki var fjallað um kosti og galla rafbíla. Niðurstaðan úr áætlunum var sú að miðað við gefnar forsendur gæti reksturinn staðið undir sér og skilað viðunandi arðsemi. Hins vegar sést greinilega á næmnigreiningunum að um er að ræða mjög viðkvæman rekstur og lítið má út af bera. Eflaust má útfæra þetta verkefni á annan hátt eins og með hugsanlegu samstarfi við aðra framleiðsluaðila eða með því að gera Ísland að enn ákjósanlegri staðsetningu fyrir rafbílaframleiðendur að prófa afurðir sínar á.