Greining á erfðabreytileika tveggja gena í grunnvatnsmarflónni Crangonyx islandicus

Um síðustu aldamót fundust á Íslandi tvær einlendar tegundir grunnvatnsmarflóa, Crymostygius thingvallensis og Crangonyx islandicus. Fundur þessa tegunda vakti athygli vegna þess að lífríki Íslands einkennist af lítilli tegundafjölbreytni og fáum einlendum tegundum. Báðar tegundirnar tilheyra ætt ma...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Brynja Matthíasardóttir 1994-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2017
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/28424
Description
Summary:Um síðustu aldamót fundust á Íslandi tvær einlendar tegundir grunnvatnsmarflóa, Crymostygius thingvallensis og Crangonyx islandicus. Fundur þessa tegunda vakti athygli vegna þess að lífríki Íslands einkennist af lítilli tegundafjölbreytni og fáum einlendum tegundum. Báðar tegundirnar tilheyra ætt marflóa sem er nær eingöngu bundin við grunnvatn. Crangonyx islandicus hefur fundist víða í grunnvatnslindum á eldvirka svæði landsins en Crymostygius thingvallensis er sjaldgæf. Athugun á landfræðilegum breytileika í hvatberaDNA C. islandicus sýndi skýra þróunarlega aðgreiningu stofna innan Íslands sem hafa greinst frá því fyrir upphaf síðustu ísaldar. Aðgreining stofnanna fylgdi vel landfræðilegum aðskilnaði og styður það þá tilgátu að þær hafi lifað undir jökli á jökulskeiðum ísaldar. Elsta aðgreiningin var milli stofns í N-Þingeyjarsýslu og annarra stofna þ.á.m. stofns í S-Þingeyjarsýslu. Greining á breytileika í innröðum á kjarnalitningum og nú síðar á erfðamörkum víðsvegar úr erfðamengi tegundarinnar úr fjórum sýnum frá Þingeyjarsýslum og Þingvallavatni benda til að stofnarnir í Þingeyjarsýslum séu skyldari innbyrðis en við stofninn við Þingvallavatn. Nokkur erfðamörk úr síðastnefndu greiningunni bentu til áhrifa frá náttúrulegu vali vegna mikillar aðgreiningar milli þessara fjögurra sýna, m.a. erfðamörk úr hvatberageninu NADH og úr histón 3 geninu (H3N). Til að greina frekar landfræðilegu frávikin var breytileiki í þessum genum athugaður með því að raðgreina einstaklinga víðsvegar af landinu og erfðabreytileiki þeirra greindur. Í ljós kom að breytileiki í NADH geninu styður fyrri greiningar á hvatberaerfðaefni C. islandicus. H3N sýnir aðskilnað sýnatökustaða frá suðurlandi (S og S‘), suðvesturlandi (SV) og norðausturlandi (NA) í fjórar aðskildar þyrpingar á svipuðum tíma. Approximately twenty years ago, two amphipod species were found in Iceland, that is Crymostygius thingvallensis and Crangonyx islandicus. This finding was interesting since the Icelandic biota is known for little species diversity and few ...