List augnabliksins : fræðslustarf Borgarleikhússins

Fræðslustarf í leikhúsi hefur verið í stöðugri þróun víðs vegar í heiminum eftir að markvisst var farið að huga að því í upphafi 20. aldar. Hérlendis hefur aukin meðvitund varðandi fræðslu barna og ungmenna um menningu verið að aukast, en áhersla á gerð menningarstefnu hjá ríki og sveitarfélögum hef...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Guðrún Ýr Eðvaldsdóttir 1988-
Other Authors: Háskólinn á Bifröst
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2017
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/28422
Description
Summary:Fræðslustarf í leikhúsi hefur verið í stöðugri þróun víðs vegar í heiminum eftir að markvisst var farið að huga að því í upphafi 20. aldar. Hérlendis hefur aukin meðvitund varðandi fræðslu barna og ungmenna um menningu verið að aukast, en áhersla á gerð menningarstefnu hjá ríki og sveitarfélögum hefur beint athyglinni enn frekar að málefninu. Í rannsókninni er leitað eftir svörum um hver staða fræðslustarfsemi sé í leikhúsum með sérstakri áherslu á fræðslustarf Borgarleikhússins. „Þarf fræðslustarf í leikhúsum að berjast fyrir tilvist sinni?” er spurningin sem leitast verður eftir að svara. Ólíkir þættir hafa áhrif á starfið, hvort sem það er rekstur eða samstarf. Þessir þættir verða hér settir í samhengi og starfið skoðað í samanburði við rannsóknir, kenningar og starf erlendis sem hér á landi. Markmið rannsóknarinnar er að fara yfir þá þætti sem hafa sýnt í erlendum rannsóknum að hafi skilað árangri á þeim forsendum að miðla menningu til barna og ungmenna. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna fram á að það sé verðugt að skoða þetta málefni og virkja umræður á þeim grundvelli að leikhús sé fyrir alla en til þess að starf þrífist til langtíma þarf að ala upp kynslóð sem nýtur þess að fara í leikhús.