Fæðuofnæmi og fæðuóþol í leikskólum Reykjavíkurborgar: lýsandi þversniðsrannsókn

Inngangur: Markmið rannsóknarinnar var að kanna algengi fæðuofnæmis og fæðuóþols hjá börnum á leikskólum Reykjavíkurborgar og hversu vel leikskólar standa að því að hafa umhverfi barna með fæðuofnæmi sem öruggast. Efniviður og aðferðir: Spurningalisti útbúinn fyrir þessa rannsókn var sendur til 65 l...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Aðalheiður Rán Þrastardóttir 1986-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2017
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/28399
Description
Summary:Inngangur: Markmið rannsóknarinnar var að kanna algengi fæðuofnæmis og fæðuóþols hjá börnum á leikskólum Reykjavíkurborgar og hversu vel leikskólar standa að því að hafa umhverfi barna með fæðuofnæmi sem öruggast. Efniviður og aðferðir: Spurningalisti útbúinn fyrir þessa rannsókn var sendur til 65 leikskóla hjá Reykjavíkurborg árið 2014. Svör fengust frá 49 leikskólum (75%) með 4225 börn. Algengi fæðuofnæmis og fæðuóþols var metið út frá fjölda læknisvottorða sem afhent eru á leikskólana. Lýsandi tölfræði var notuð til að meta hvort ferlar væru til staðar fyrir börn með fæðuofnæmi/-óþol á leikskólum og hvort þeir tengdust menntun leikskólastjóra, menntun starfsmanns í eldhúsi og stærð leikskóla. Niðurstöður: Algengi fæðuofnæmis og fæðuóþols var 5%, bráðofnæmis 1% og fjölfæðuofnæmis 1%. Mjólkuróþol var algengast (2,3%) en þar næst mjólkurofnæmi (1,7%) og eggjaofnæmi (1,4%). Allir leikskólar utan einn voru með barn með fæðuofnæmi og/eða -óþol (98%). Tæpur helmingur leikskólanna (41%) var með virkt ferli til að fara eftir ef barn skyldi fyrir slysni fá ofnæmisvaka með fæðunni. Aðeins 55% leikskóla með barn með bráðaofnæmi sögðu allt starfsfólk sitt þekkja einkenni ofnæmiskasts og 64% þeirra sögðu starfsfólk sitt upplýst og þjálfað í hvernig bregðast skuli við ofnæmiskasti. Engin marktæk tengsl voru á milli menntunar leikskólastjóra, starfsmanns í eldhúsi og stærð leikskóla og hvernig staðið var að málum barna með fæðuofnæmi/-óþol. Ályktun: Fimm prósent barna í rannsókninni voru með staðfest fæðuofnæmi og/eða fæðuóþol. Nær allir leikskólarnir voru með börn með fæðuofnæmi og/eða fæðuóþol og helmingur þeirra með börn með bráðaofnæmi. Tryggja þarf betur umhverfi fyrir börn með fæðuofnæmi og samræma verkferla. Introduction: The aim of the study was to explore prevalence of food allergies and intolerances among children in preschools in Reykjavik, Iceland. Also, to investigate how well preschools manage to keep the environment safe for children with food allergies. Materials and methods: A questionnaire, made for this ...