Frumvarp um raflínur að iðnaðarsvæðinu á Bakka í ljósi Árósasamningsins

Þann 21. september árið 2016 var mælt fyrir stjórnarfrumvarpi um heimild til handa Landsneti hf. til að reisa og reka 220 kV raflínur frá Kröflustöð að Þeistareykjavirkjun og að iðnaðarsvæðinu á Bakka í Norðurþingi. Ástæða fyrirhugaðar lagasetningar voru niðurstöður þriggja úrskurða úrsk...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Ósk Elfarsdóttir 1994-
Other Authors: Háskólinn í Reykjavík
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2017
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/28290
Description
Summary:Þann 21. september árið 2016 var mælt fyrir stjórnarfrumvarpi um heimild til handa Landsneti hf. til að reisa og reka 220 kV raflínur frá Kröflustöð að Þeistareykjavirkjun og að iðnaðarsvæðinu á Bakka í Norðurþingi. Ástæða fyrirhugaðar lagasetningar voru niðurstöður þriggja úrskurða úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála um að stöðva framkvæmdir Landsneta hf., um að reisa og reka áðurnefndar raflínur, til bráðabirgða á meðan málið væri til meðferðar hjá úrskurðarnefndinni. Frumvarpið var gagnrýnt því það kynni að brjóta á þeim rétti umhverfisverndarsamtaka að geta fengið tilteknar stjórnvaldsákvarðanir sem áhrif hafa á umhverfið endurskoðaðar fyrir hlutlausum og óháðum aðila. Þau réttaráhrif sem frumvarpið hefði haft í för með sér hefðu þýtt að yfirstandandi málsmeðferðir umhverfisverndarsamtaka fyrir úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála yrðu stöðvaðar. Réttur félagasamtaka til réttlátrar málsmeðferðar í umhverfismálum er verndaður í Árósasamningnum og ESS-samningnum og því var haldið fram að frumvarpið, hefði það náð fram að ganga, kynni að fara í bága við samningana. Ritgerðarspurningin er hvort að fyrirhuguð lagasetning hefði samræmst kröfum Árósasamningsins, um rétt almennings til aðgangs að réttlátri málsmeðferð í umhverfismálum, hefði hún náð fram að ganga. Í ritgerðinni verða skoðaðar kröfur Árósasamningsins til aðildarríkja sinna hvað varðar rétt almennings til réttlátrar málsmeðferðar í umhverfismálum. Niðurstaða höfundar er að frumvarpið hefði að líkindum ekki brotið gegn skuldbindingum Íslands samkvæmt Árósasamningnum en engu að síður hefði lagasetningin ekki samræmst markmiði og tilgangi samningsins. On September 21th 2016 a bill was proposed before the Icelandic Parliament granting Landsnet hf. permission to build above ground power lines to be established in Northern Iceland. The reason for the proposed legislation were three interim rulings by an administrative authority which concluded that the ...