Meginreglan um ákveðna og ljósa kröfugerð

Viðfangsefni ritgerðarinnar er meginreglan um ákveðna og ljósa kröfugerð eins og hún kemur fram í d-lið 1. mgr. 80. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. Þar segir að í stefnu skuli greina svo glöggt sem verða má frá dómkröfum stefnanda. Annað af tveimur meginmarkmiðum ritgerðarinnar er að leit...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Guðmundur Narfi Magnússon 1993-
Other Authors: Háskólinn í Reykjavík
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2017
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/28277
Description
Summary:Viðfangsefni ritgerðarinnar er meginreglan um ákveðna og ljósa kröfugerð eins og hún kemur fram í d-lið 1. mgr. 80. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. Þar segir að í stefnu skuli greina svo glöggt sem verða má frá dómkröfum stefnanda. Annað af tveimur meginmarkmiðum ritgerðarinnar er að leitast við að skýra inntak meginreglunnar með hliðsjón af tengdum réttarreglum og dómaframkvæmd Hæstaréttar Íslands. Hitt markmið ritgerðarinnar er að taka til skoðunar hvers vegna íslenskir dómstólar leggja ríka áherslu á að kröfugerð stefnanda uppfylli formskilyrði laga um meðferð einkamála og hvaða sjónarmið liggja þar helst að baki. Meginniðurstöður ritgerðarinnar eru þær að samning kröfugerðar er nákvæmnisverk en það fer þó ávallt eftir sakarefni hversu nákvæmlega kröfur verða orðaðar. Dómaframkvæmd bendir til þess að íslenskir dómstólar leggi ríka áherslu á að kröfugerð stefnanda uppfylli formskilyrði laga um meðferð einkamála. Þannig má rekja helstu annmarka við framsetningu á kröfugerð til ónákvæmni sem á sér ýmsar birtingarmyndir. Það er vert að líta til hinna Norðurlandanna en tiltekin ákvæði í danskri og norskri réttarfarslöggjöf virðast stuðla að því að koma í veg fyrir frávísun máls vegna annmarka. Margvísleg rök liggja þó til grundvallar reglum um vandaðan málatilbúnað sem er m.a. forsenda þess að málsmeðferð gangi greiðlega fyrir sig, að gagnaðili geti tekið til varna með fullnægjandi hætti og að úrlausn máls geti leitt til afgerandi dómsniðurstöðu sem leysir úr ágreiningi málsaðila. The subject matter of this thesis is the principle of a certain and clear claim as stated in the 1st paragraph d. article 80 of the Civil Procedure act no. 91/1991, which states that the plaintiff's claims should be stated as clearly as possible in the subpoena. The purpose of the thesis is mainly twofold: first, to explain the principle, with reference to related rules and case law of the Supreme Court of Iceland; second, to consider why the Icelandic courts emphasize that the plaintiff´s claim fulfills the requirements of ...